Innlent

78 prósent smitaðra á höfuð­borgar­svæðinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Tólf greindust með veiruna innanlands í gær og tíu á landamærunum.
Tólf greindust með veiruna innanlands í gær og tíu á landamærunum. Vísir/Vilhelm

Alls greindust tólf með kórónuveiruna innanlands í gær og þar af voru allir nema einn í sóttkví.

Sex þeirra sem greindust í gær tengjast klasasmiti sem komið hefur upp í húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Alls hafa átta greinst með veiruna í tengslum við klasasmitið.

Tíu greindust með veiruna á landamærunum í gær. Tveir voru með virkt smit en beðið er mótefnamælinar hjá hinum átta.

Í uppfærðum tölum á covid.is kemur fram að nú séu alls 245 í sóttkví og 188 í einangrun. 146 hinna smituðu eru í einangrun á höfuðborgarsvæðinu eða 78 prósent smitaðra.

24 eru í einangrun á Suðurnesjum, sex á Suðurlandi, einn á Norðurlandi eystra, einn á Norðurlandi vestra, sjö á Vesturlandi og þrír eru óstaðsettir.

1.240 eru í skimunarsóttkví og fækkar í þeim hópi á milli daga. 33 eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu, líkt og í gær.

Nýgengi innanlandssmita, það er fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er á niðurleið. Það er nú 42,3 en var 44,5 í gær.

Það sama má segja um nýgengi landamærasmita; það var 9,8 í gær en er nú 9,5.

Alls voru tekin 766 einkennasýni í gær, 66 sýni í sóttkvíar- og handahófsskimun og 553 sýni við landamæraskimun.

Af þeim tólf sem greindust með veiruna innanlands greindust fjórir í einkennasýnatöku, sjö í handahófs- og sóttkvíarskimun og einn við skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×