Piparkökukaka Evu Laufeyjar Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. nóvember 2020 11:00 Piparkökukakan góða Eva Laufey Kjaran
Piparkökubollakökur Evu Laufeyjar Kjaran eru alltaf vinsælar. Fyrir þessa fallegu jólaköku tvöfaldaði Eva Laufey þá uppskrift og gerði fallega piparkökuköku. Því er uppskriftin frekar stór þar sem hún vildi ná þremur þykkum botnum. Hráefni í kökuna 500 g sykur 280 g smjör, við stofuhita 6 egg við stofuhita 500 g hveiti 2 tsk lyftiduft 4 dl rjómi 4 tsk vanilludropar 2,5 tsk kanill 1 tsk malaður negull 1 tsk hvítur pipar 1 tsk engifer krydd Aðferð: Forhitið ofninn í 180°C. Þeytið saman smjör og sykur í um það bil þrjár mínútur, bætið einu og einu eggi saman við. Þeytið vel á milli. Sigtið saman hveiti og lyftiduft, bætið hveitiblöndunni, vanillu, rjómanum og kryddum saman við eggjablönduna og þeytið mjög vel í nokkrar mínútur þar til blandan verður silkimjúk. Smyrjið þrjú jafn stór kökuform og skiptið deiginu jafnt á milli. Bakið kökubotnanna við 180°C í 35-37 mínútur. Kælið kökurnar mjög vel áður en þið smyrjið á þær krem. Eva Laufey Karamellukrem 500 g smjör, við stofuhita 800 – 900 g flórsykur 1,5 – 2 dl söltuð karamellusósa Piparkökumulningur Rósmarín greinar Piparkökur Flórsykur (sem snjór) Fersk ber að eigin vali til dæmis hindber. Aðferð: Þeytið smjör og flórsykur saman í nokkrar mínútur, því lengur sem þið hrærið kremið því betri áferð verður á því. Bætið karamellusósu út í og þeytið áfram þar til kremið er silkimjúkt. Smyrjið smá karamellusósu á milli botnanna og svo fer karamellukremið. Fyrsta umferðin má vera svolítið gróf og svo er kakan kæld í klukkustund síðan fer næsta umferð af kremi yfir alla kökuna. Skreytið kökuna gjarnan með rósmarín greinum, piparkökumulningi, piparkökum og svolítið af flórsykri. Söltuð karamellusósa 150 g sykur 4 msk smjör 1 dl rjómi Sjávarsalt á hnífsoddi Aðferð: Bræðið sykur á pönnu við vægan hita, best að hafa alls ekki háan hita og fara hægt af stað. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er orðin þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við. Leyfið sósunni að kólna alveg áður en þið bætið henni saman við kremið. Eva Laufey er dugleg að baka bragðgóðar og fallegar kökur yfir hátíðirnar. Hún heldur úti Instagram síðu og uppskriftarbloggi.Eva Laufey Aðferðina og fullt af fleiri girnilegum uppskriftum og hugmyndum má finna á Instagram síðu Evu Laufeyjar.
Uppskriftir Kökur og tertur Eva Laufey Tengdar fréttir Ein af þessum týpum sem heldur að hún geti allt Matarbloggarinn Berglind Hreiðarsdóttir sendi frá sér bókina Saumaklúbburinn fyrir jólin og má þar finna bæði uppskriftir frá henni og tíu bestu vinkonum hennar líka. Berglind kom sjálfri sér á óvart og sá sjálf um umbrot, hönnun og útgáfu. 14. nóvember 2020 12:00 Snúðar með rjómaostakremi og oreo mulningi „Það er alltaf hægt að færa rök fyrir góðum kanilsnúðum, sérstaklega í þessu veðri,“ segir matgæðingurinn og þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran. Þessi uppskrift gefur 12 til 14 snúða en auðvelt er að tvöfalda hana. 7. nóvember 2020 12:00 Apabrauð Evu Laufeyjar Matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran sýndi þessa sniðugu uppskrift af apabrauði eða Monkey Bread á Instagram. Það þarf að leyfa deiginu að hefast í klukkustund svo gott er að gefa sér góðan tíma í þennan bakstur. 31. október 2020 12:01 Mest lesið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Stjörnulífið: Frumsýnir kærastann á Tenerife Lífið Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Lífið samstarf Stóri plokkdagurinn haldinn á sunnudaginn Lífið Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Lífið
Ein af þessum týpum sem heldur að hún geti allt Matarbloggarinn Berglind Hreiðarsdóttir sendi frá sér bókina Saumaklúbburinn fyrir jólin og má þar finna bæði uppskriftir frá henni og tíu bestu vinkonum hennar líka. Berglind kom sjálfri sér á óvart og sá sjálf um umbrot, hönnun og útgáfu. 14. nóvember 2020 12:00
Snúðar með rjómaostakremi og oreo mulningi „Það er alltaf hægt að færa rök fyrir góðum kanilsnúðum, sérstaklega í þessu veðri,“ segir matgæðingurinn og þáttastjórnandinn Eva Laufey Kjaran. Þessi uppskrift gefur 12 til 14 snúða en auðvelt er að tvöfalda hana. 7. nóvember 2020 12:00
Apabrauð Evu Laufeyjar Matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran sýndi þessa sniðugu uppskrift af apabrauði eða Monkey Bread á Instagram. Það þarf að leyfa deiginu að hefast í klukkustund svo gott er að gefa sér góðan tíma í þennan bakstur. 31. október 2020 12:01
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp