Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2020 10:47 Meirihluti þeirra sem eru í einangrun eða í sóttkví vegna kórónuveirunnar eru á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm
Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra voru ekki í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Nú eru 52 á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af fjórir á gjörgæslu. Í gær voru 55 á sjúkrahúsi og þar af fjórir á gjörgæslu. Einn greindist smitaður á landamærum samkvæmt uppfærðum tölum og er niðurstöðu mótefnamælingar þar beðið. 233 manns eru nú í einangrun, samanborið við 267 í gær. Þá eru 348 í sóttkví í dag, samanborið við 384 í gær. Af þeim fjórum sem greindust innanlands í gær greindust allir eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 50,7 en var 56,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 8,5, en var 7,9 í gær. Nú hafa 5.231 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 26 nú látnir. Sé litið til einstakra landshluta má sjá að enn eru flestir í einangrun og í sóttkví á höfuðborgarsvæðinu. Fólki í einangrun á höfuðborgarsvæðinu hefur þó fækkað milli daga, fer úr 181 í 158. Fólki í sóttkví fer úr 275 í 232. Athygli vekur að fólki í sóttkví fjölgar á Austurlandi og er komið í 38 eftir smitið sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Alls voru tekin 735 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 205 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru sextán sýni tekin í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Sjá meira