Innlent

Allir starfs­menn arki­tekta­stofu í sótt­kví: „Allir komnir með vinnu­stöð heima“

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Ásgeir Ásgeirsson, einn eigandi arkitektastofunnar T.ark, segist hafa það gott í sóttkvínni.
Ásgeir Ásgeirsson, einn eigandi arkitektastofunnar T.ark, segist hafa það gott í sóttkvínni.

Eigandi arkitektastofu segir stemninguna hafa verið einkennilega þegar fyrst fréttist að samstarfsfélagi væri smitaður af kórónuveirunni, fyrstur Íslendinga. Nú vinna hins vegar allir að heiman og nota forritið Skype á vinnufundum.

Um er að ræða arkitektastofuna T.ark en þar vinna um 20 manns. Maðurinn, sem hafði verið á Ítalíu, mætti til vinnu í tvo og hálfan dag áður en hann greindist. Hann sagði samstarfsmönnum sínum strax frá stöðunni um miðjan dag síðastliðinn föstudag. 

„Það var mjög einkennilegt, svo ég kannski noti mjög vægt orð. Hann var bara í hátalaranum í símanum við alla starfsmenn. Hann var hress og kátur sem var fyrsti léttirinn miðað við allar fréttir. Svo leið föstudagurinn en við vorum öll saman á föstudeginum þangað til maðurinn í geimbúningnum mætti",“ segir Ásgeir Ásgeirsson, einn eigandi T.ark

Þau pöntuðu pizzur og drukku rauðvín sem til var á stofunni. Um klukkan níu um kvöldið var búið að taka sýni úr öllum og flestir fóru heim. 

Allir komnir með vinnustöð heima

Næstu dagar fóru í að hringja í viðskiptavini sem höfðu komið inn á stofuna á þeim tíma sem hætta var á smiti og að ákveða næstu skref, nú þegar allur vinnustaðurinn var kominn í sóttkví. 

„Það eru bara allir komnir með vinnustöð heima. Það er tölvusérfræðingur hjá okkur sem er búinn að tengja alla,“ segir Ásgeir. 

Starfsmenn tali saman í síma og tölvupósti og þá er forritið Skype notað á fundum við viðskiptavini. „Það eru viðskiptavinirnir okkar sem er þolandinn. Við náum ekki að gera allt sem við áttum að gera. Ég atti að vera með kynningarfund á mánudag fyrir sveitarfélag til dæmis,“ segir Ásgeir sem annars hefur það nokkuð gott í sóttkvínni. 

„Ég átti reyndar að fara til útlanda á laugardaginn í sólina að spila golf þannig það var mesta svekkelsið fyrir mig. En þetta er allt í lagi maður þarf bara að hugsa þetta aðeins öðruvísi. Panta inn matinn á netinu og svona praktísk mál en annars gengur lífið  bara sinn vanagang,“ segir Ásgeir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×