Jarðskjálfti að stærð 3,1 á Reykjanestá Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. febrúar 2020 23:58 Grindavík með fjallið Þorbjörn í baksýn. Vísir/Arnar
Jarðskjálfti að stærð 3,1 varð klukkan 20:10 í kvöld um 3,6 km norður af Reykjanestá. Nokkrir eftirskjálftar fylgdu, að því er segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar. Jarðskjálftahrinan við Reykjanestá heldur áfram og eru allir skjálftarnir undir 3,0 að stærð. Dregið hefur úr landrisi á svæðinu við Grindavík en enn þá mælist aflögun. Næsti fundur vísindaráðs Almannavarna verður haldinn þriðjudaginn 25. febrúar næstkomandi. Þá varar Veðurstofan við hellaskoðun við Eldvörp á Reykjanesskaga. Gasmælingar þar á fimmtudag sýndu lífshættuleg gildi á koltvísýringi, sem og súrefnisskort, í helli við bílastæði í grennd við vinsælar gönguleiðir. Þann 20. febrúar hófst svo skjálftahrina um 10 kílómetra norður af Gjögurtá, sem er norður af Grenivík. Rúmlega 200 skjálftar hafa mælst á svæðinu, allir undir þremur að stærð. Engar tilkynningar hafa borist um að þeir hafi fundist í byggð. Hrinur eru algengar á þessum slóðum.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira