Innlent

Holtavörðuheiði opin

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á ellefta tímanum í kvöld.
Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á ellefta tímanum í kvöld.

Holtavörðuheiði var opnuð aftur upp úr klukkan hálftíu í kvöld en henni var lokað síðdegis eftir að nokkrir bílar fóru þar út af veginum, meðal annars vörubíll og hestaflutningabílar.

Það er hins vegar stórhríð á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og metur Vegagerðin leiðina ófæra vegna veðurs.

Fyrr í dag var þjóðvegi 1 á milli Hnappavalla og Hala í Suðursveit lokaður vegna veðurs en hann var opnaður á ný um klukkan átta í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×