Sport

Það hefur þurft þrjú hólf að meðaltali í Pepsi Max deild karla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Grótta er í fyrsta sinn í efstu deild og hér má sjá stuðningsmenn liðsins á leik á Seltjarnarnesinu.
Grótta er í fyrsta sinn í efstu deild og hér má sjá stuðningsmenn liðsins á leik á Seltjarnarnesinu. Vísir/HAG



Yfir þúsund áhorfendur hafa komið að meðaltali á leik í fyrstu sex umferðum Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu.

Knattspyrnusamband Íslands hefur tekið saman tölur yfir aðsókn á fyrstu sex umferðir Pepsi Max deildar karla. Alls hafa mætt 33.929 áhorfendur á leikina eða 1.028 að meðaltali á hvern leik.

Átta af tólf liðum deildarinnar eru með yfir eitt þúsund áhorfendur að meðaltali á sínum heimaleikjum.

Þessu hafa liðin hafa náð þrátt fyrir að það hafi verið í gangi takmarkanir á fjölda áhorfenda. Frá og með 15. júní hafa mátt vera 500 áhorfendur á viðburðum og ef áhorfendasvæði er skipt í sóttvarnarhólf er heimilt að allt að 500 áhorfendur geti verið í hverju hólfi.

Flestir áhorfendur að meðaltali sækja leiki Breiðabliks á Kópavogsvellinum, eða 1.644, og ef meðalaðsókn á útileiki liða er skoðuð má sjá að flestir mæta einnig á útileiki Breiðabliks, eða 1.535.

KR-ingar fylgja Blikum fast á eftir í báðum flokkum. Best sótti leikurinn hingað til er einmitt viðureign þessara tveggja liða á Meistaravöllum, þar sem áhorfendur voru 2.352 talsins.

Í næstu sætum eru síðan lið FH (1264 áhorfendur að meðaltali), Vals (1259) og Stjarnan (1184). Lið Víkings (1080), Fylkis (1056) og HK (1050) hafa einnig fengið yfir þúsund áhorfendur á sína leiki.

Tveir leikir hingað til hafa farið yfir tvö þúsund í áhorfendafjölda - fyrrgreindur leikur KR og Breiðabliks, og svo heimaleikur Breiðabliks gegn nýliðum Gróttu, en 2.114 áhorfendur sóttu þann leik.

Fjögur félög af tólf hafa fengið minna en þúsund áhorfendur að meðaltali á heimaleiki sína en það eru Grótta (723 áhorfendur að meðaltali), KA (784), Fjölnir (806) og ÍA (868).

Sjöunda umferðin hefst með leik Stjörnunnar og HK í kvöld sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Á morgun fara síðan tveir leikir fram klukkan 16.00 (Fjölnir-FH og KA-Grótta) en síðustu þrír leikir umferðarinnar fara fram á sunnudaginn og verða þá leikur Fylkis og KR (klukkan 17.30) og leikur Breiðabliks og Vals (klukkan 20.00) sýndir beint á Stöð 2 Sport. Leikur Víkings og Skagamanna fer fram klukkan 19.15 á sunnudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×