Giggs komst næst því að fara frá Man. United sumarið 2004 Anton Ingi Leifsson skrifar 11. maí 2020 10:00 Ryan Giggs fagnar undramarki sínu frá 1999. Getty/ Matthew Peters
Ryan Giggs, sem lék tæplega 700 leiki fyrir Manchester United, segir að hann hafi verið næst því að yfirgefa félagið tímabilið 2003/2004. Hann ákvað þó að taka slaginn áfram og safnaði hverjum titlinum á fætur öðrum. Giggs lék allan sinn feril með United. Hann skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning árið 1990 og endaði á því að leika 672 leiki fyir félagið. Hann skoraði 114 mörk fyrir Rauðu djöflanna. Wales-verjinn vann ensku deildina þrettán sinnum, enska bikarinn fjórum sinnum og Meistaradeildina í tvígang áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2014, þá fertugur. Hann segir þó að tíu árum áður hafi hann mögulega verið á förum. Ryan Giggs reveals he came close to leaving Manchester United in 2004 https://t.co/TEXJskSEYm— MailOnline Sport (@MailSport) May 10, 2020 „Tímabilið 2003/2004 þá byrjaði ég ekki tímabilið vel. Þetta var sumarið sem Beckham fór og það var þegar ég komst næst því að fara frá félaginu,“ sagði Giggs í samtali við beIN Sports í þættinum Champions Club. „Ég var ekki í góðu formi og þarna var ég að breytast úr fljúgandi kantmanni í það að vera meira fyrir miðju vallarins. Ég hafði tapað hraðanum en ég endaði svo tímabilið mjög vel. Ef ég hefði ekki endað tímabilið vel þá veit ég ekki hvað hefði gerst.“ Giggs sér væntanlega ekki eftir því að hafa verið áfram hjá félaginu því hann vann deildina fimm sinnum, enska bikarinn og Meistaradeildina á næstu árum. Magnaður ferill. „Fyrir utan þennan tíma þá var ekki einhver annar tími þar sem stjórinn sagði að ég væri ekki að standa sig. Ég var inn og út úr liðinu undir lok ferilsins en ég var vanur því. Það var allt í lagi. Ég var þarna 35 ára þangað til ég var fertugur og ég þurfti að venjast því að vera inn og út úr liðinu.“
Enski boltinn Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Fótbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti Fleiri fréttir Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Salah klúðraði vítaspyrnu er Nígería tók þriðja sætið Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Ísaki fórnað í langþráðum sigri Kölnar Birta hetja Genoa í frumrauninni Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Mbappé á skotskónum í fyrsta sigrinum undir stjórn Arbeloa Draumabyrjun hjá Carrick KR fær tvo unga Ganverja „Stoltur að fá þetta tækifæri og tek því ekki sem sjálfsögðum hlut“ Sjá meira