Tuttugasti desember er runninn upp og því fjórir dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.
Vísir telur niður til jóla með fallegu jólalagi úr safni sínu á hverjum degi.
Að þessu sinni eru það Salóme R. Gunnarsdóttir og Pálmi Freyr Hauksson úr leikhópnum Improv Ísland sem flytja jólalagið. Það er í óhefðbundnari kantinum þar sem lagið fæddist í söngspuna í þættinum Jólaboð Jóa árið 2017 á Stöð 2.
Það tíðkast í spunaleikhúsi að fá tillögur úr sal og vinna síðan með þær hugmyndir. Salóme og Pálmi fengu orðið Snickers frá borðinu í jólaboðinu og nánast engan tíma til umhugsunar áður en Karl Olgeirsson hóf undirspil.
Úr varð stórskemmtilegt jólalag um þau vandræði sem geta fylgt því að vera vegan í jólaboði.
Jólalag dagsins: Vandræði að vera vegan í jólaboði

Tengdar fréttir

Jólalag dagsins: Raggi Bjarna syngur Er líða fer að jólum með Togga Tempó á píanóinu
Þrettándi desember er runninn upp og því ellefu dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Jólalag dagsins: Baggalútur syngur Annar í jólum
Sautjándi desember er runninn upp og því tíu dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Jólalag dagsins: Hafdís Huld flytur lagið Jólahjól
Fimmtándi desember er runninn upp og því tíu dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Jólalag dagsins: Laddi með sögulegan flutning á Snjókorn falla
Tólfti desember er runninn upp og því tólf dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Jólalag dagsins: Gleði og friðarjól með Pálma Gunnars
Fjórtándi desember er runninn upp og því tíu dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.