UNICEF ætlar að mæta þörfum 59 milljóna barna á næsta ári Heimsljós kynnir 5. desember 2019 09:45 Unicef
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur metið neyðarþörf fyrir árið 2020. Stofnunin kveðst þurfa rúmlega 520 milljarða íslenskra króna til að mæta brýnum þörfum 59 milljóna barna í 64 þjóðríkjum víðs vegar um veröldina. UNICEF hefur aldrei birt ákall um jafnmikla fjárhæð en hún er rúmlega þrisvar sinnum hærri en ákallið árið 2010. „Í dag horfum við upp á metfjölda barna víðs vegar um heiminn sem þarf á neyðaraðstoð að halda, mesta fjölda frá því við hófum slíka skráningu. Fjórða hvert barn býr í landi þar sem ýmist geisar stríð eða hamfarir,“ segir Henrietta Fore framkvæmdastýra UNICEF. „Þessi börn eru nauðug rifin upp með rótum af heimilum sínum og þurfa tafarlausa vernd og stuðning. Átök eru megin ástæðan en hungur, smitsjúkdómar og öfgaveður tengt loftslagsbreytingum neyða milljónir annarra til að leita eftir lífsbjargandi aðstoð,“ bætir hún við. UNICEF veitir börnum á átaka- og hamfarasvæðum margháttaða aðstoð eins og hreint neysluvatn, aðgengi að salernum, menntun, heilbrigðis- og öryggisþjónustu. Ef fullorðnum sem njóta stuðnings UNICEF er bætt við barnafjöldann nær ákallið til 95 milljóna manna. Af einstökum heimshlutum er þörfin mest í grannríkjum Sýrlands þar sem þorri sýrlenskra flóttamanna býr, í Egyptalandi, Jórdaníu, Líbanon, Írak og Tyrklandi. Næst mest er þörfin í Jemen, þá í Sýrlandi, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Suður-Súdan.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Kristrún bað forseta um að stöðva umræður Innlent Vonar að „eitt skemmt epli“ skemmi ekki fyrir hinum Innlent Guðmundur Ingi á sjúkrahúsi Innlent Símtalið við Ingu skráð í skjalakerfi skólans Innlent Íslendingar í öðrum bílnum og erlendir ferðamenn í hinum Innlent Óttast að framtíð gamla Vesturbæjarins sé í húfi Innlent Tjáir sig um símtalið margfræga: „Hún var ekki í neinu jafnvægi“ Innlent Birtu áður óséðar myndir af einkaeyju Epsteins Erlent Koma Ársæli til varnar og telja ráðherra refsa honum fyrir skoðanir sínar Innlent Íslenskur maður á níræðisaldri lést á Fjarðarheiði Innlent