Innlent

Ganga milli húsa og bjóða fram vinnu við að steypa bíla­plön

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglumenn höfðu uppi á mönnunum og ræddu við þá.
Lögreglumenn höfðu uppi á mönnunum og ræddu við þá. Vísir/vilhelm
Tveir erlendir karlmenn hafa að undanförnu gengið í hús í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum og boðið fram vinnu við að steypa bílaplön og fleira.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að allmargar tilkynningar hafi borist lögreglu vegna þessa.

„Lögreglumenn höfðu uppi á mönnunum og ræddu við þá. Þeim var meðal annars gerð grein fyrir því að þeir mættu ekki starfa hér á landi nema þeir væru með tilskilin leyfi til þess,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×