Innlent

Bein út­sending: Mál­þing heil­brigðis­ráð­herra

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, setur fundinn klukkan 17.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, setur fundinn klukkan 17.
Fundurinn Horft til framtíðar, málþing heilbrigðisráðherra, fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, klukkan 17 í dag. Sýnt verður beint frá fundinum hér að neðan.

Meðal viðfangsefna verða „menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni, staða rannsókna og vísindastarfs og forysta til árangurs,“ eins og því er lýst í kynningarefni fundarins. Markmiði sé að fjalla um þessar „mikilvægu stoðir heilbrigðiskerfisins í ljósi nýrrar heilbrigðisstefnu til ársins 2030.“

Meðal þeirra sem munu flytja tölu eru fyrrnefndur heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, auk Ölmu D. Möller landlæknis og Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans.

Fundurinn hefst sem fyrr segir klukkan 17 og má fylgjast með honum hér að neðan. Undir spilaranum má sjá dagskrá fundarins í heild sinni, en áætlað er að honum ljúki klukkan 18:55.

Setning fundarins kl. 17.00

Ávarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra

17:10 Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni

Alma D. Möller landlæknir flytur framsögu

Sófaspjall: Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands (HÍ), Sandra Bryndísardóttir Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands og Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala

17:50 Vísindi

Engilbert Sigurðsson forseti læknadeildar HÍ flytur framsögu

Sófaspjall: Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent við HÍ, Sunna Snædal, formaður vísindasiðanefndar og Unnur Valdimarsdóttir prófessor við HÍ.

18:20 Forysta til árangurs

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala flytur framsögu.

Sófaspjall: Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur.

18:55 Heilbrigðisráðherra slítur fundi.


Tengdar fréttir

Segir nýja heilbrigðisstefnu vonbrigði

Formaður Samtaka heilbrigðisfyrirtækja segir nýja heilbrigðisstefnu gríðarleg vonbrigði. Um sé að ræða hálfkláraða stefnu sem virkar ekki sem það stýritæki sem málaflokkurinn þarf. Dapurlegt sé að Alþingi hafi samþykkt svo hálfunnið skjal.

Segir nýsamþykkta heilbrigðisstefnu marka tímamót

Ný heilbrigðisstefna var samþykkt á Alþingi í dag og er hún sú fyrsta sinna tegundar hér á landi. Heilbrigðisráðherra segir þetta mikil tímamót enda verið kallað eftir slíkri stefnu um árabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×