Lukaku segist hafa verið einn af þremur blórabögglum Manchester United Anton Ingi Leifsson skrifar 22. ágúst 2019 07:30 Romelu Lukaku yfirgáf Man. Utd í sumar. vísir/getty
Romelu Lukaku vandar Manchester United ekki kveðjurnar í nýju viðtali við hlaðvarpið Light Harted. Þar segir Belginn að hann hafi verið einn af þremur blórabögglum Manchester United. Belgíski framherjinn yfirgaf Manchester United í sumar og gekk í raðir Inter Milan. Kaupverðið var 75 milljónir punda en Lukaku hafði spilað tvær leiktíðir með United. Lukaku var oft gagnrýndur fyrir frammistöðu sína hjá enska félaginu og sagður vera of þungur. Hann segist hafa verið einn af þeim sem fengu alltaf á baukinn, sama hvað gekk á hjá félaginu."They have to find somebody. It's the three of us all the time." https://t.co/dmDpAdkjJM — Mirror Football (@MirrorFootball) August 21, 2019 „Þeir verða að finna einhvern. Þetta var Pogba, ég eða Alexis. Þetta vorum við þrír alltaf. Fyrir mér, þá sé ég þetta á marga vegu,“ sagði framherjinn stóri og stæðilegi. „Það var mikið rætt og mér fannst ég ekki verndaður. Mikið af slúðri: Rom er að fara þangað og þeir vilja ekki hafa hann. Enginn kom fram og þaggaði niður í þessu.“ „Fullt af fólki segir að ég geti ekki verið hluti af þessu leikskipulagi. Ég hlæ því hvernig getur allt farið niður á við í mínu liði en þegar ég spila með landsliðinu er allt í góðu? Og ég góður,“ sagði ekki sáttur Lukaku.
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira