Ólafur Ragnar grillar í predikara á götuhorni í Washington DC Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. ágúst 2019 09:04 Ólafur Ragnar virðist hafa verið með barnabarni sínu í bandarísku höfuðborginni.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands frá 1996-2016, gaf sér tíma á dögunum til að hlýða á orð predikara nokkurs á götuhorni í Washington DC í Bandaríkjunum. Til umræðu var uppruni hvíta fólksins og spyr predikarinn Ólaf Ragnar meðal annars hvort hvíta fólkið í Bandaríkjunum og Íslandi sé ólíkt. Ólafur Ragnar er hvergi banginn, ræðir við predikarann og segir frá uppruna Íslendinga sem komi af víkingum. Predikarinn heldur uppteknum hætti, studdur fleirum sem taka þátt í sýningu hans úti á götu, og les meðal annars brot úr Biblíunni til að útskýra fyrir Ólafi Ragnari að hvítt fólk sé alls staðar eins.Jóhannes Benediktsson vakti athygli á myndbandinu á Facebook. Ólafur Ragnar fær hrós frá predikaranum fyrir að hlýða á sig og segjast skilja orð predikarans. Eitthvað sem svart fólk, að sögn predikarans, geri ekki einu sinni. Í framhaldinu kveður Ólafur Ragnar og segist ætla að gefa sér tíma til að lesa umræddan texta úr Biblíunni nánar. Samskiptin voru tekin upp á myndband og má sjá í heild sinni hér að neðan. Er vísað til þess í titli myndbandsins að Íslendingur nokkur hafi fengið kennslustund um uppruna sinn. Í ummælum við myndbandið er bent á að ekki sé um að ræða neinn venjulegan Íslending heldur fyrrverandi forseta landsins.
Bandaríkin Ólafur Ragnar Grímsson Trúmál Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu