Hver mínúta með Ed Sheeran dásamleg Elín Albertsdóttir skrifar 10. ágúst 2019 09:30 Áhorfendur geta átt von á stórkostlegum tónleikum að því er Hafrún Ósk segir og hún hefur reynsluna. FRÉTTABLAÐIÐ/Ernir
Hafrún Ósk segir að jólagjöfin hafi komið henni stórkostlega á óvart. Hún hafi verið mikill aðdáandi Eds Sheeran og tónleikarnir voru fyrirhugaðir 18. maí 2018. „Ég gat varla beðið. Raunar er ég óendanlega mikill Eurovision-aðdáandi og var dauðhrædd um að þetta myndi skarast en svo reyndist ekki vera. Hafði hugsað mér að fara til Portúgal og sjá keppnina með eigin augum en fékk ekki miða sem betur fer. Ed Sheeran tónleikarnir voru algjörlega ógleymanleg lífsreynsla og Eurovision-lögin í fyrra urðu að láta í minni pokann þar sem Ed var alltaf á fóninum hjá mér,“ segir Hafrún. „Mig hafði lengi dreymt um að sjá hann á sviði þannig að ósk mín var að rætast. Með gjöfinni fylgdi mynd af mér og Ed sem eiginmaðurinn hafði haft fyrir að fótósjoppa. Sagan er reyndar hálfsögð því ég gleymdi að opna þennan pakka og var farin að taka til eftir pakkaflóðið með sópinn í hendinni þegar gjöfin uppgötvaðist. Ég fór bara að gráta með kústinn upp við öxlina,“ segir Hafrún og skellihlær þegar hún rifjar þetta upp.Á tónleikum Eds Sheeran í Dyflinni. Þar voru sextíu þúsund áhorfendur.Með stjörnuna í návígi „Það eru ekki til nein orð sem lýsa því nógu vel hversu geggjaðir þessir tónleikar voru, fóru langt fram úr væntingum. Þeir fóru fram í stórum garði, Phoenix Park, í Dyflinni. Við mættum snemma, upp úr eitt eftir hádegi en svæðið var ekki opnað fyrr en klukkan hálf fimm. Við settumst bara niður og höfðum það notalegt í rosalega góðu veðri,“ útskýrir hún. „Reyndar vissum við ekki þá að þeir sem myndu mæta fyrstir á svæðið fengju besta staðinn fyrir framan sviðið. Fimm hundruð manns komust þangað og þar á meðal við.“ Hafrún segir að eiginmanninum, Birni Albertssyni, hafi ekki litist á blikuna fremst við sviðið. Vildi helst ekki taka pláss frá öllum unglingsstelpunum. „En við vorum þarna allt til enda. Fórum hvorki á salerni né að kaupa bjór. Satt að segja var hver einasta mínúta dásamleg. Á tónleikunum voru um 60 þúsund manns. Það voru þrennir tónleikar í Dyflinni og sami fjöldi á þeim öllum,“ upplýsir Hafrún.Miðarnir sem Hafrún fékk í óvænta jólagjöf frá eiginmanninum.Allir sungu með Þeir sem komu fram með Ed á tónleikunum voru hin vinsæla Anne-Marie, Jamie Lawson og Beoga. Hafrún segir að upphitunin hafi því einnig verið stórkostleg. „Það var geggjað að sjá Anne-Marie. Hún er stórkostleg söngkona. Flutti meðal annars hið vinsæla lag Rockabye. Um leið og tónleikarnir hófust með upphitun fór fjörið í gang og ótrúleg stemming strax meðal áhorfenda. Allt gekk ótrúlega vel fyrir sig. Ed sjálfur var alveg á réttum tíma og ég minnist þess ekki að hann hafi tekið nokkra pásu. Eiginlega trylltist allt þegar hann mætti. Það er svo stórkostlegt að sjá manninn einan á sviðinu allan þennan tíma og hann hélt áhorfendum heilluðum allan tímann. Ég held að hver einasti maður á svæðinu hafi sungið með honum, allir kunnu textana og lögin. Ég fæ enn gæsahúð yfir því hvað þetta var æðislegt og hlakka rosalega til að sjá hann aftur,“ segir Hafrún og er greinilega orðin mjög spennt. „Ég er samt búin að lofa manninum mínum að standa ekki upp við sviðið að þessu sinni,“ bætir hún við í gamansömum tón. Hafrún segist hafa verið með þeim fyrstu sem keyptu miða á tónleikana á Laugardalsvelli. „Ég hefði getað fengið miða í stúkunni en langaði frekar að geta hreyft mig og labbað um.“ Magnaður á sviði Ed Sheeran hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá Hafrúnu og hún segir að það hafi fyrst og fremst verið lögin hans sem heilluðu. „Ég þekki öll lögin og finnst þau æðisleg. Sum lög sem maður tekur ekkert sérstaklega eftir á Spotify verða mögnuð þegar hann flytur þau á sviðinu. Hann skiptir um gítar eftir hvert lag og það er mjög gaman að fylgjast með honum á sviðinu.“ Hafrún hafði ekki áður farið á tónleika erlendis en hún hefur séð nokkrar þekktar hljómsveitar hér á landi, meðal annarra Duran Duran. „Mig hefði langað til að sjá Adele en hún hefur ekki verið með tónleika lengi. Núna hugsa ég bara um Ed Sheeran tónleikana í kvöld. Þeir sem eru með miða eiga eftir að fá stórkostlega og ógleymanlega upplifun. Maðurinn minn var ekkert spenntur fyrir Ed áður en við fórum til Dyflinnar en núna hlakkar hann líka mikið til. Þetta er rosalegt „show“ og algjörlega einstakt,“ segir Hafrún sem hefur alltaf verið mikill tónlistarunnandi.Sviðið var glæsilegt hjá Ed Sheeran.Algjör Eurovision-nörd „Ég hef náttúrlega alltaf verið rosalegur Eurovision-nörd og er ákveðin í að fara á keppnina áður en hún verður haldin á Íslandi. Ég er þess fullviss að það verður einhvern tíma,“ segir hún. „Ég hef fylgst með Eurovision síðan ég var barn og ætlaði einu sinni að giftast Johnny Logan,“ segir hún hlæjandi og þakkar fyrir að úr því hafi ekki orðið. Hafrún er 47 ára og segir að hún hafi alls ekki verið elst á Ed Sheeran. „Fólk á öllum aldri er hrifið af lögunum hans. Það er einmitt skemmtilegt hvernig hann höfðar til breiðs aldurshóps. Við erum að fara nokkur saman og ætlum að helga tónleikunum daginn, mæta snemma og upplifa. Ég ætla að njóta alla leið,“ segir hún. Æðislegt sumar Hafrún sem starfar í tölvudeild Heklu og Björn, maður hennar, sem er matreiðslumaður, hafa verið í sumarfríi sem endar um þessa helgi. Þau hafa notið sumarsins og meðal annars siglt um Suður-Frakkland. „Það var mjög afslappað frí auk þess sem við sáum Frakkland frá nýju sjónarhorni, vínekrur, kastala og litla, fallega bæi. Þetta er búið að vera æðislegt sumar og hápunkturinn verður núna um helgina.“
Ed Sheeran á Íslandi Mest lesið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Fjármagnaði uppsetningu í Iðnó en hrökk úr lið á frumsýningu Lífið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Lífið Sunneva og Benedikt trúlofuð Lífið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið „Eina sem maður getur gert er að reyna vera betri maður í dag en þá“ Lífið Gengur yfir Sprengisand með hundrað kíló í eftirdragi Lífið „Ég vildi fela mig fyrir heiminum“ Lífið Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Fjármagnaði uppsetningu í Iðnó en hrökk úr lið á frumsýningu Sunneva og Benedikt trúlofuð Tónlistarmyndband Addison Rae tekið upp á Íslandi Gengur yfir Sprengisand með hundrað kíló í eftirdragi Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Mælir með því að tala við gervigreind sem sálfræðing „Eina sem maður getur gert er að reyna vera betri maður í dag en þá“ „Ég vildi fela mig fyrir heiminum“ „Leyfi lífinu bara að leiða mig“ Annarri tilraun að Fyre-hátíðinni frestað um ókomna tíð Fanney og Teitur greina frá kyninu Sonur Ringo Starr rekinn úr The Who Drógu saman um 74 prósent í samgöngukostnað Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Ferðalög, heimsóknir eða huggulegheit heima framundan um páskana Hátíðlegur páskamatseðill að hætti Móniku á Apótekinu 100 áhrifamestu einstaklingar í heimi Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Breytt útlit Daða Freys vekur athygli Horfði á vin sinn fara í snjóflóði Falleg sérhæð í Hlíðunum Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Skuggavaldið: Dýrð og dauði dansa saman í blóði og bjarma Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Kastaði Pétri og Sveppa fram og til baka í indverskri glímu Sjá meira