Innlent

Landlæknir bað Evu Þóru afsökunar símleiðis

Andri Eysteinsson skrifar
Eva Þóra Hartmannsdóttir segir niðurlægjandi að hafa verið flokkuð sem negríti þegar hún mætti í mæðravernd.
Eva Þóra Hartmannsdóttir segir niðurlægjandi að hafa verið flokkuð sem negríti þegar hún mætti í mæðravernd. SKJÁSKOT ÚR FRÉTT
Hjúkrunarfræðineminn Eva Þóra Hartmannsdóttir, sem vakti á dögunum athygli á því að konur af afrískum uppruna væru flokkaðar sem negrítar í sjúkraskrám sínum, greinir frá því að Landlæknir hafi slegið á þráðinn til hennar og beðist afsökunar á málinu.

Sjá einnig: Kölluð „negríti“ í sjúkrasögu sinni án útskýringa

Forsaga málsins er sú að Eva, sem er barnshafandi, tók eftir því í 25 vikna skoðun að ljósmóðirin sem aðstoðaði hana hakaði við „negríti“ í kynþáttaflokkun í sjúkraskrá Evu. Þegar Eva leitaði útskýringa á því fékk hún svarið að þetta hafi alltaf verið svona. Í viðtali við Stöð 2 sagðist Eva samstundis tengja orðið við orðið negri, sem löngum hefur þótt niðurlægjandi og fordómafullt.

Eva segir landlækni hafa gefið sér góðan tíma í að fara yfir málin með henni og útskýrt hlutina og gefið færi á að spyrja spurninga. Þá þakkaði hún einnig Evu fyrir að hafa opnað umræðuna um þetta mál.

Sjá einnig: Þar til í mars á þessu ári voru konur af afrískum uppruna skráðar sem „negrítar“ í sjúkraskrá

Yfirlæknir á fæðingardeild Landspítalans, Hulda Hjartardóttir, sagði í viðtali við Stöð 2 að með nýrri uppfærslu sem tekin var í gagnið í mars síðastliðnum hafi orðalaginu verið breytt í „af afrískum uppruna.“ Eva segir í færslu sinni á Facebook að sú vinna hafi farið af stað í desember síðastliðinn þegar kona ein tók eftir skráningu eiginmanns síns sem „negríta“.

Eva segir að hennar heilsugæsla sé ein einungis tveggja á landinu sem ekki hafi tekið upp áðurnefnda uppfærslu og því hafi orðið „negríti“ verið notað í sjúkraskýrslunni. Eva segir að embætti Landlæknis hafi ætlað sér að koma í veg fyrir að nokkur þurfi að upplifa slíkt aftur.

Eva Þóra segist vera gríðarlega ánægð með að hafa tjáð sig fyrir hönd minnihlutahóps á Íslandi og meðal annars komið í veg fyrir að hennar eigin börn sjái þetta orðalag í sjúkraskrám sínum.

Þetta segir Eva vera skref í rétta átt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×