Spieth hefur ekki unnið golfmót síðan hann vann Opna breska risamótið í júlí 2017.
Hann byrjaði vel á fyrsta hring á Pebble Beach vellinum í gær með fugli á annari holu en hann fór illa með holu 6, sem er par fimm hola, og fékk skolla á henni og tvo skolla á áttundu og níundu holu.
Á áttundu holu gerði hann tvö stór mistök. Upphafshöggið var of fast, fór yfir brautina og rann ofan í vatnið. Þriðja höggið inn á flötina var aftur of fast og fór djúpt í kargann við hliðina á flötinn.
Spieth var augljóslega pirraður og hann heyrðist vel taka reiði sína út á kylfusveininum Michael Greller í sjónvarpsútsendingunni í Bandaríkjunum.
Jordan Spieth just completely called out his caddie on national TV. Whether the caddie misjudged it or not, that's a bush league move. At the end of the day, you're the one hitting the golf ball.#USOpenpic.twitter.com/lFSYQSGrvR
— Danny Vietti (@DannyVietti) June 13, 2019
„Tvö fullkomin skot Michael. Þú komst mér í vatnið með einu og yfir flötina með hinu,“ á Spieth að hafa sagt.
Hinn 25 ára Spieth náði að koma sér aftur á rétta braut, fór seinni níu skollalausar og náði í einn fugl, kláraði því hringinn á einu höggi yfir pari.
Spieth hefur fengið nokkra gagnrýni fyrir þessi viðbrögð sín og svaraði fyrir sig í viðtali eftir hringinn.
„Þegar þú hittir tvö skot nákvæmlega eins og þú vilt og eitt þeirra endar í vatninu og hitt yfir flötina, þá verð ég pirraður að við sem lið gátum ekki komið í veg fyrir að þetta gerðist,“ sagði Spieth.
„Ég leit kannski út eins og vondi karlinn en ég vil að við séum í leik ef ég hitti boltann almennilega. En ég var úr leik í báðum þessum skotum.“
Spieth er jafn í 58. - 76. sæti fyrir annan hring, niðurskurðarlínan er oftast í kringum 70. sæti svo Spieth þarf að passa sig á öðrum hring svo hann fái að vera með út mótið.
Bein útsending frá öðrum hring hefst klukkan 19:00 á Stöð 2 Golf.