Hollendingar urðu í þriðja sæti á HM í Brasilíu 2014 en næstu fjögur ár á eftir voru þeim afar erfið. Liðið sem mætir Englendingum í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar í kvöld er aftur á móti eitt mest spennandi landslið heims í dag.
Leikur Hollands og Englands hefst klukkan 18.45 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Liðið sem vinnur mætir Portúgal í úrslitaleiknum á sunnudaginn en í boði þar er fyrsti Þjóðadeildartitillinn.
Matthijs de Ligt
Frenkie de Jong
Donny van de Beek
"To have that amount of talent coming through at the same time, it's a really exciting time ahead for Dutch football."@GKPaulRobinson on the Netherlands' brilliant blend of youth, experience and talent.#NEDENGpic.twitter.com/ylqyGZNrid
— beIN SPORTS (@beINSPORTS) June 5, 2019
Það má kannski segja að hollenska landsliðið loksins búið að jafna sig eftir Íslandsmartröðina en það voru tvö töp á móti Íslandi í undankeppni EM 2016 sem sáu öðru fremur til þess að Hollendingar voru heima í sófa þegar Evrópumótið fór fram í Frakklandi sumarið 2016.
Ísland vann fyrst 2-0 á Laugardalsvellinum í október 2014 og svo 1-0 í Amsterdam í september 2015. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði öll þrjú mörkin.
Íslenska landsliðið skildi Holland eftir í riðlinum (fékk sjö stigum meira) og sló síðan í gegn með því að komast alla leið í átta liða úrslitin á sínu fyrsta stórmóti í karlaflokki.
Hollendingar náðu ekki að rífa sig upp í næstu undankeppni og sátu líka eftir í undankeppni HM 2018 þar sem Frakkland og Svíþjóð komust áfram. Frakkar urðu síðan heimsmeistarar og Svíar komust í átta liða úrslitin þannig að þetta var mjög sterkur riðill.
'Everybody wants to play'
Netherlands have revived their fortunes after missing out on Euro 2016 and the 2018 World Cup.
Here's why the feel-good factor is back ahead of the Nations League semi-final against England https://t.co/RdKWi9Nezgpic.twitter.com/UN10YKVvBa
— BBC Sport (@BBCSport) June 6, 2019
Hollendingar hafa nú gengið í gegnum stór kynslóðarskipti og hafa á síðustu árum eignast nýja frábæra leikmenn í fremstu röð.
Liðið vann sinn riðil í Þjóðadeildinni og skildi þá eftir heimsmeistara Frakka og öflugt lið Þýskalands. Liðið er því þegar byrjað að sýna styrk sinn og í kvöld mætir liðið frábæru ensku landsliði sem komst í undanúrslitin á HM í fyrrasumar.
Virgil van Dijk, miðvörður Evrópumeistara Liverpool, hefur nú tekið við fyrirliðabandinu og við hlið hans er Matthijs de Ligt, nítján ára fyrirliði Ajax sem sló í gegn í Meistaradeildinni á nýloknu tímabili. Vörnin er því skipuð miklum leiðtogum og þá er meiri samheldni og meiri leikgleði ríkjandi innan liðsins.
Framar á vellinum verður spennandi að fylgjast með Frenkie de Jong, nýjum leikmanni Barcelona, Donny van de Beek hjá Ajax og Memphis Depay, sem fann sig ekki hjá Manchester United en hefur síðan slegið í gegn á meginlandinu. Evrópumeistarinn Georginio Wijnaldum hjá Liverpool er líka inn á miðjunni ef hann kemst í liðið.
Þjóðadeildin er tilvalið tækifæri fyrir Hollendinga til að stimpla sig inn á ný meðal bestu knattspyrnuþjóða heims. Þeir unnu síðasta titil á EM 1988 með Ruud Gullit og Marco Van Basten í fararbroddi og þeir appelsínugulu hafa því þurft að bíða í meira en þrjátíu ár eftir titli.
With arguably the best centre-back partnership in world football, Ronald Koeman is bringing the Netherlands back to their glory years, utilising an exciting crop of young players!
Hit if you think Netherlands win the Nations League pic.twitter.com/8k67e3XCdP
— Coral (@Coral) June 6, 2019