Ólafía á tveimur höggum yfir pari eftir fyrsta hring Anton Ingi Leifsson skrifar 23. maí 2019 23:15 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, lék fyrsta hringinn á Pure Silk-meistaramótinu á tveimur höggum yfir pari en fyrsti hringurinn fór fram í dag. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni, sem er sterkasta mótaröðin í kvenaflokki, en Ólafía er ekki með fullan keppnisrétt á mótinu heldur fær takmarkaðan aðgang að nokkrum mótum. Ólafía spilaði mjög stöðugt golf í dag og fékk tíu pör í röð áður en fyrsti skollinn kom á elleftu holu dagsins. Hún bætti það upp með fugli á 13. holu en aftur kom skolli á þeirri fjórtándu. Hún endaði því á einu höggi yfir pari og er í 104. sæti þegar þetta er skrifað en annar hringurinn fer fram á morgun. Næsta mót hjá Ólafíu er svo risamót en eftir viku hefst US Open þar sem Ólafía verður á meðal keppenda.
Golf Mest lesið Æfur og krefst rannsóknar eftir „lélegan brandara“ Sport Björgvin Karl hluti af nýrri atvinnumannadeild í CrossFit Sport Karlarnir fengu pening en konurnar sjampó, sápu og handklæði Sport Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Handbolti Úkraínska landsliðið finnst hvergi Sport Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fótbolti Handknattleiksambandið fær langmest úr Afrekssjóði ÍSÍ en KSÍ ekki neitt Sport Mark ársins strax á fyrsta degi? Enski boltinn Ballið byrjar hjá strákunum okkar Handbolti Friðrik Ingi orðinn þjálfari Hauka Körfubolti Fleiri fréttir Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira