Innlent

Bjarni vill skil­greina betur rétt sjúk­linga

Heimir Már Pétursson skrifar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. vísir/vilhelm
Fjármálaráðherra segir nauðsynlegt að skilgreina réttindi sjúklinga til þjónustu betur í lögum burt séð frá því hvort þeir fái þjónustuna hjá opinberum heilbrigðisstofnunum eða einkaaðilum. Formaður Viðreisnar segir að lina þurfi strax þjáningar þeirra sem bíði aðgerða.

Í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, marga þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem nú þrýstu á samninga við sjálfstætt starfandi heilbrigðisfyrirtæki hafa hafnað tillögu Viðreisnar um 200 milljóna framlag til Sjúkratryggingar Íslands á meðan ríkisstjórnin væri að koma sér saman um heilbrigðisáætlun og stefnu.

„En fólkið á biðlistunum getur ekki beðið lengur. Þeirra þjáningum verður að linna. Við vitum að það eru biðlistar á biðlista ofan. Þetta leysist ekki nema allar hendur verið settar og dregnar upp á dekk,“ sagði Þorgerður Katrín.

Rekstrarformið ætti ekki að skipta máli í þessu samhengi. Hægt væri að sinna opinberri þjónustu bæði af opinberum aðilum og einkaaðilum. Hún spurði fjármálaráðherra hvort hann muni beita sér fyrir því að Sjúkratryggingar gætu að minnsta kosti samið tímabundið við sjálfstætt starfandi heilbrigðisfyrirtæki. 

„Til þess að koma til móts við að leysa þessa biðlista sem eru ekki hvað síst í liðskiptaaðgerðum. Til þess að Sjúkratryggingar fái þá heimild til að semja við sjálfstætt starfandi aðila,“ sagði formaður Viðreisnar. 

Nauðsyn að auka skilvirkni

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði nauðsynlegt að auka skilvirkni í heilbrigðiskerfinu og fækka á biðlistum. Málið væri flókið úrlausnar. 

„Við erum með ákveðið ástand á Landsspítalanum sem tengist síðan aftur uppbyggingu hjúkrunarrýma í landinu. Ég vil gerast talsmaður þess að við reynum að skilgreina betur réttinn sem felst í sjúkratryggingum og horfa meira á heilbrigðiskerfið út frá rétti sjúkninganna og festa okkur minna í hvar lausnirnar verða til,“ sagði Bjarni.


Tengdar fréttir

Heilbrigðisráðherra bíður úttektar áður en ákvörðun verður tekin um nýtt biðlistaátak

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvernig fækka megi á biðlistum eftir liðskiptaaðgerðum. Hún kveðst bíða niðurstöðu úttektar frá Landlækni vegna biðlistaátaks. Um ellefu hundruð biðu eftir liðskiptaaðgerðum í október en Svandís segist ekki sannfærð um að þeir sem þurfi mest á aðgerð að halda komist alltaf fyrstir að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×