Hreindýr spókaði sig á íþróttavellinum á Höfn Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. mars 2019 20:11 Dýrið hljóp yfir völlinn og hvarf svo inn í hríðina. Skjáskot/Facebook
Hreindýr gerði sig heimakomið á íþróttavellinum á Höfn í Hornafirði um fimmleytið í dag. Eyjólfur Guðmundsson, skólameistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, tók hreindýrið upp á myndband þar sem það rölti yfir völlinn og birti á Facebook-síðu sinni. Eyjólfur segir í samtali við Vísi að hreindýrið hafi verið að sniglast í bænum í nokkra daga. Aðspurður segir hann að sér hafi því ekki brugðið þegar hann kom auga á dýrið. „Ég vissi af því, og það hefur svo sem gerst áður að það hefur komið inn í bæ en ég hafði aldrei séð það þarna áður.“ Þá sé það ekki algengt að hreindýr hætti sér inn í bæinn en það hafi þó gerst áður. Dýrið hvarf svo inn í hríðina eftir snúning á vellinum en Eyjólfur segist ekki hafa séð það aftur í dag. Myndband Eyjólfs má sjá í spilaranum hér að neðan. Kjörsvæði hreindýra á Íslandi er á hálendinu norðan og norðaustan við Vatnajökul og á Austfjörðum. Þá er þetta ekki í fyrsta skipti sem hreindýr lætur sjá sig á Höfn en árið 2015 rataði myndskeið af hreindýri á vappi í bænum í fjölmiðla. Skömmu áður höfðu hreindýr sést synda inn í höfnina og halda þar upp á land.
Dýr Hornafjörður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira