Blaðað í fortíðinni 14. mars 2019 12:30 Höfundur tónlistar og flytjandi er Snorri Helgason.
Fyrir rúmum áratug keypti Friðgeir Einarsson þrjú myndaalbúm á flóamarkaði í Belgíu, nánar tiltekið í Brussel, á afmælisdegi sínum. Þegar betur var að gáð kom í ljós að myndasafnið tilheyrði sömu ónafngreindu konunni sem fór á sínum yngri árum í lok sjöunda áratugarins tvisvar til Mallorca og gifti sig síðan á óþekktum stað þann 16. mars 1985. Friðgeir eyðir næstu árum í að blaða í albúmunum og reyna að púsla saman lífshlaupi konunnar. Club Romantica, frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins í síðustu viku, er tilraun til að koma leitarniðurstöðunum til skila og fara með áhorfendur í ferðalag á óþekktar slóðir, bæði til útlanda og inn á við. Sviðsetning á sjálfinu er þyrnum stráð. Hvaða útgáfu af sjálfinu er manneskjan á sviði að setja fram, þá sérstaklega í sjálfsævisögulegri sýningu sem fjallar um f leiri en sjálf sviðslistamannsins? Listin í Club Romantica felst í því að Friðgeir fjallar einmitt um sjálfan sig í gegnum sögu óþekktrar konu, sem hann kynnist á tíu ára tímabili í gegnum sitt eigið ímyndunaraf l. Leikurinn hefst fyrir alvöru þegar hann leggur upp í leit að konunni sem átti albúmin, eða þá verður alvaran raunveruleg og raunveruleikinn alvarlegur. Friðgeir hefur einstaka sviðsverund, nærvera hans á sviði er ólík nokkrum öðrum. Hann er fjarlægur en einlægur á sama tíma, hreinskilinn en dulur. En hann gætir þess að sýna margumræddri konu þá virðingu sem hún á skilið, þetta er sýning um hana og ástæðurnar fyrir því af hverju þessi persónulegu albúm enduðu á flóamarkaði. Með Friðgeiri í slagtogi er tónlistarmaðurinn Snorri Helgason sem ekki einungis semur tónlistina og flytur heldur tekur að sér ýmisleg smærri hlutverk. Litlir kaflar í sýningunni eru nefnilega sungnir sem ýtir undir angurværa og kómíska stemmingu Club Romantica. Áhorfendur rýna í þessar fjörutíu ára gömlu myndir úr fjarlægð og hlátur er fyrstu viðbrögðin. Myndirnar eru óskýrar, vandræðalegar og stundum jafnvel óheillandi. En þegar líða tekur á nagar nost algían, spurningunum fjölgar og líf kviknar í kringum albúmin. Á síðastliðnum árum hefur Pétur Ármannsson getið sér gott orðspor fyrir að leikstýra einleikjum og smíðar sterkan ramma utan um Club Romantica þar sem allt er gert til að láta kjarna verksins, ferðalag Friðgeirs og áhorfendanna, njóta sín. Leik my nd a hönnun Brynju Björnsdóttur hefur sjaldan verið betri, ekki bara vegna þess sem má sjá á sviðinu, heldur líka vegna þess sem áhorfendur sjá ekki (líkt og á myndunum). Hlutir eru gefnir í skyn fremur en að sýna þá og myndbandsvinnan skiptir þar sköpum. Nýja sviðið er afmarkað með bæði hliðar- og baktjöldum, eftir liggur lítil sandeyja sem er í raun og veru ekkert nema frekar óspennandi teppalagt svið. Plönturnar eru af þeirri gerð að ómögulegt er að sjá hvort þær eru raunverulegar eða ekki. Fatnaður leikaranna tveggja er einstaklega ósmekklegur, toppaður með syndsamlega ljótum plastskóbúnaði Friðgeirs, fullkomin múndering fyrir ferð til Mallorca. Hið sama má segja um alla aðra hönnun Club Romantica. Pálmi Jónsson í samvinnu við Brynju víkkar hugmyndaheim verksins með fyrirtaks myndbandsvinnu. Einnig sér hann um ljósahönnunina í slagtogi við Ólaf Ágúst Stefánsson af mikilli næmni. Hljóðhönnun Baldvins Magnússonar leikur lykilhlutverk í sýningunni og dýpkar söguna. Forvitnilegt verður að sjá hvort Leikhópurinn Abendshow með Friðgeir í forustuhlutverki eigi sér framhaldslíf eftir þessa sýningu því allar listrænar ákvarðanir þeirra spila fallega inn í hugmyndafræði Club Romantica og niðurstaðan er ein besta sýning þessa leikárs. Sigríður Jónsdóttir.NIÐURSTAÐA: Heillandi rannsóknarleiðangur um lífið og tilveruna.
Gagnrýni Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Aðalsteinn Bergdal er látinn Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Sjá meira