Þórdís Helgadóttir valin leikskáld Borgarleikhússins Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. mars 2019 16:36 Brynjólfur Bjarnason, Frú Vigdís Finnbogadóttir, Þórdís Helgadóttir og Kristín Eysteinsdóttir. Mynd/Borgarleikhúsið
Þórdís Helgadóttir hefur verið valin Leikskáld Borgarleikhússins en Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri, tilkynnti um valið á móttöku í Borgarleikhúsinu í dag. Þórdís tekur við af Birni Leó Brynjarssyni en verk hans Magnum Opus verður sýnt í Borgarleikhúsinu á næsta leikári. Þórdís Helgadóttir er rithöfundur og leikskáld. Hún er menntuð í heimspeki, ritstjórn og ritlist og hlaut Fulbright-styrk til framhaldsnáms í heimspeki við Rutgers-háskóla í New Jersey. Smásagnasafn hennar Keisaramörgæsir kom út 2018 og leikverkið Þensla var sýnt í Borgarleikhúsinu árið 2019 sem hluti af sýningunni Núna! 2019. Með Svikaskáldum hefur Þórdís gefið út ljóðabókina Ég er ekki að rétta upp hönd, og smásögur hennar, ljóð, esseyjur og þýðingar hafa birst víða í tímaritum og bókum. Stjórn Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur stendur fyrir valinu á leikskáldi Borgarleikhússins en í henni sitja Frú Vigdís Finnbogadóttir, Brynjólfur Bjarnason auk Kristínar Eysteinsdóttur, leikhússtjóra. Sjóðurinn var stofnaður árið 2007. Fyrri leikskáld hússins eru Tyrfingur Tyrfingsson, Salka Guðmundsdóttir, Auður Jónsdóttir, Jón Gnarr og Kristín Marja Baldursdóttir.
Leikhús Menning Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira