Innlent

Fá 300 milljónir króna í styrk til að byggja upp lífs­ýna­safn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Rannsóknarhópurinn starfar undir forystu Sigurðar Yngva Kristinsson, prófessors í blóðsjúkdómum.
Rannsóknarhópurinn starfar undir forystu Sigurðar Yngva Kristinsson, prófessors í blóðsjúkdómum. kristinn ingvarsson
Rannsóknarhópur sem starfar undir forystu Sigurðar Yngva Kristinsson, prófessors í blóðskjúkdómum við læknadeild Háskóla Íslands og sérfræðings við Landspítala, hefur hlotið 300 milljóna króna styrk til þess að byggja upp lífsýnasafn í tengslum við þjóðarátakið Blóðskimun til bjargar.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Háskóla Íslands en Blóðskimun til bjargar er ein umfangsmesta rannsókn sem farið hefur fram í heiminum. Alls taka um 80 þúsund manns hér á landi þátt í rannsókninni sem ýtt var úr vör haustið 2016 í samstarfi Háskóla Íslands, Landspítala og Krabbameinsfélags Íslands.

Markmið átaksins er að rannsaka áhrif skimunar fyrir forstigi mergæxlis, komast að orsökum sjúkdómsins til þess að bæta líf þeirra sem greinast með mergæxli og um leit leita lækninga við honum. Öllum einstaklingum, sem fæddir eru 1975 eða fyrr hér á landi, var boðið að taka þátt í rannsókninni.

Styrkurinn sem rannsakendur hljóta nú til þess að byggja upp lífsýnasafnið er veittur í gegnum Black Swan Research Institute sem er verkefni innan góðgerðasamtakanna International Myeloma Foundation.

„Um er að ræða elsta og stærsta sjóð í heimi sem styrkir sérstaklega rannsóknir á mergæxlum en markmið hans er að stuðla að lækningu mergæxlis og bættum lífsgæðum fyrir mergæxlissjúklinga bæði með rannsóknum, fræðslu, stuðningi og ráðgjöf.

Sjúkdómurinn er ólæknandi og árlega greinast um 25 manns með sjúkdóminn hér á landi og alls um 200 þúsund manns í heiminum öllum. Samfara auknum rannsóknum á sjúkdómnum og nýjum og betri lyfjum hafa horfur sjúklinga með mergæxli hins vegar batnað gríðarlega síðastliðin ár,“ segir í tilkynningu háskólans en nánari upplýsingar má nálgast hér.


Tengdar fréttir

Hlýtur alþjóðleg verðlaun fyrir rannsóknir á sviði mergæxla

Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor í blóðsjúkdómum við Læknadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur á Landspítalanum, hlaut í gærkvöldi sérstök alþjóðleg heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi rannsóknir á sviði mergæxla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×