Innlent

Hægt að hindra þriðjung dauðsfalla af krabbameini

Sveinn Arnarsson skrifar
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins sem hefur herferð í dag.
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins sem hefur herferð í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Í fyrra létust tæplega 700 manns á Íslandi af völdum krabbameina. Krabbameinsfélagið telur að hægt væri að koma í veg fyrir að minnsta kosti þriðjung þessara dauðsfalla með auknum forvörnum, þekkingu á einkennum, snemmgreiningu og meðferð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í tilefni þess að í dag er alþjóðlegi krabbameinsdagurinn. Vinnuvikan sem er að hefjast verður tileinkuð fræðslu tengdri krabbameinum og forvörnum gegn þeim.

Þá hefst í dag þriggja ára herferð krabbameinsfélaga um allan heim. Hefur Krabbameinsfélagið fengið fyrirtæki til liðs við sig sem skuldbinda sig til að láta til sín taka í baráttunni gegn krabbameinum.

Þessi fyrirtæki munu miðla upplýsingum til starfsmanna sinna og stuðla að heilsusamlegu vinnuumhverfi. Þá eru önnur fyrirtæki hvött til að skrá sig til leiks og verður boðið upp á fyrirlestra í fyrirtæki, ráðgjöf og fjölbreytt námskeið.

Haft er eftir Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins, að allir þurfi að vera meðvitaðir um lífsstílsþætti sem eru fyrirbyggjandi gegn krabbameinum. Fyrirtæki geti stutt við starfsmenn sína með því að auðvelda þeim að velja heilbrigða lifnaðarhætti og um leið unnið gegn krabbameinum.

„Aukin þekking hjálpar okkur að vera vakandi fyrir einkennum, taka upplýstar ákvarðanir um heilsu okkar og takast á við ótta og misskilning um krabbamein,“ segir Halla.




Tengdar fréttir

Virkja krabbameinsáætlun í fyrsta sinn

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, segir nýsamþykkta krabbameinsáætlun tímamótaplagg enda í fyrsta sinn sem slík áætlun er virkjuð hér á landi. Hún vonast til að stjórnvöld dragi ekki lappirnar í úrvinnslu hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×