Nýtt nám í veiðileiðsögn Karl Lúðvíksson skrifar 18. janúar 2019 10:05
Nú í vor mun Ferðamálaskóli Íslands bjóða upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins. Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra.Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu. Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annara ráða er varða dvöl í veiðihúsum.Farið verður í tveggja daga ferð í Ytri Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum.Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn.Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum.Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði.Námið er alls 70 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Ytri Rangár. Leiðbeinendur eru: Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur – Laxfiskar Jóhannes Hinriksson, rekstrarstjóri – Ytri Rangá Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur – Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga Björn Rúnarsson, Vatnsdalsá. Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður Kristinn Helgason, Landsbjörg Sr. Bragi Skúlason, LandspítalinnNánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-7765 Friðjón eða fs@menntun.is
Mest lesið Loksins, loksins! Frábært vatn í Norðurá Veiði Fréttir úr Ytri Rangá Veiði Góð veiði á silungasvæðinu í Vatnsdal Veiði Stóri sjóbirtingurinn mættur í Kjósina Veiði Veiðimenn hissa á boðsferð Sigmundar og Bjarna í Norðurá Veiði Veiðivísir gefur Veiðikortið 2016 Veiði Upptaka af erindi um lax og virkjanir Veiði 11 punda, spikfeitur og silfurgljáandi urriði úr Mjósundi í Laxá í Mývatnssveit Veiði Síðustu skiladagar fyrir hnýtingarkeppni framundan Veiði Laxinn mættur í fleiri ár Veiði