Eldur í húsi á Vesturgötu Kolbeinn Tumi Daðason og Kristín Ólafsdóttir skrifa 6. desember 2018 16:49 Frá vettvangi á Vesturgötu. Mynd/Einará
Slökkviliðsfólk frá höfuðborgarsvæðinu var ræst út vegna elds á Vesturgötu 25 vestur af miðbæ Reykjavíkur á fimmta tímanum í dag. Eldur kom upp í bakhúsi og stóð það um tíma í ljósum logum. Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu náði slökkviliðið tökum á eldinum á sjötta tímanum en vinna stóð enn yfir á vettvangi skömmu eftir klukkan 18. Þá þurfti að reykræsta nærliggjandi hús. Ekki var ráðist í reykræstingu á bakhúsinu vegna smæðar þess. Að sögn varðstjóra var einn fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun en allir voru þó komnir út úr húsinu þegar slökkvilið bar að garði. Ekki var hægt að gefa upplýsingar um eldsupptök. Líkt og sjá má á myndbandi frá vettvangi var um nokkuð mikinn eld að ræða en bakhús stóð í ljósum logum. Þá var lokað fyrir umferð í kringum vettvang svo að viðbragðsaðilar gætu athafnað sig og sótt vatn í brunahana.Fréttin hefur verið uppfærð.Í spilaranum hér að neðan má sjá myndband Melkorku Ólafsdóttur frá vettvangi eldsvoðans.Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá vettvangi.Bakhús stóð í ljósum logum þegar slökkvilið mætti á vettvang.Vísir/EinarÁFrá vettvangi á Vesturgötu.Mynd/Aðsend
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Sjá meira