Sultur Þórarinn Þórarinsson skrifar 9. nóvember 2018 07:00 „Það var á þeim árum þegar ég ráfaði um og svalt í Kristíaníu, þessari undarlegu borg sem enginn yfirgefur fyrr en hann hefur látið á sjá?…“ Á þessum orðum hefst Sultur, tæplega 130 ára gömul skáldsaga Hamsuns. Þessi orð eiga óþægilega vel við á Íslandi í dag. Aðeins þarf að skipta „Kristíaníu“ út fyrir „Reykjavík“. Margir ganga því miður, í sömu sporum og persóna Hamsuns, um götur höfuðborgar gósenlandsins í vonlausri leit að hinum mikla og goðsagnakennda kaupmætti sem þeim sem véla um landsins gagn og nauðsynjar verður svo tíðrætt um. Ég þarf svo sem ekkert að kvarta þar sem blaðmannslaMargir ganga því miður, í sömu sporum og persóna Hamsuns, um götur höfuðborgar gósenlandsins í vonlausri leit að hinum mikla og goðsagnakennda kaupmætti sem þeim sem véla um landsins gagn og nauðsynjar verður svo tíðrætt um.unin hrökkva svona oftast fyrir helstu nauðsynjum. Sérstaklega þá fáu mánuði á ári sem LÍN lætur mig í friði. Samt hef ég nú ekki fundið þennan kaupmátt sem hlýtur að svífa hér um í gervi heilags anda. Annars átti nú sultur ekki að vera á dagskrá hérna, heldur lifur. Þar sem lömbin eru nýþögnuð er nóg til af þessum bráðholla og járnríka mat í Bónus. Virkilega próteinríkt hey í harðindum. Allir sem hafa einhvern tíma verið barn vita að lifur er viðbjóður. Hún þarf samt ekki að vera það ef hún er meðhöndluð rétt, eins og til dæmis með uppskrift minni sem ég kalla „Rjómalegin kaupmáttarlifur“. Skerið lifrina niður í þægilega munnbita. Veltið þeim upp úr hveiti á meðan niðurskornir beikon-strimlar þurrsteikjast á pönnunni. Brúnið síðan lifrarbitana í kraumandi fitunni af fleskinu. Þegar þeim hættir að blæða er svo ¼ lítra af rjóma sullað yfir allt saman. Látið malla við lækkaðan hita þangað til rjóminn umbreytist í þykka sósu. Og sjá! Framreidd er meinholl máltíð fyrir 3-4 og kostaði ekki nema eitthvað rétt öðru hvoru megin við 2.000 kallinn. Verði ykkur að góðu! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þórarinn Þórarinsson Mest lesið Vissulega miklu meira en tollabandalag Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson Skoðun Ef þetta er ekki þrælahald – hvað er það þá? Ágústa Árnadóttir Skoðun Maðurinn sem ég kynntist í löggunni Þuríður B. Ægisdóttir Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Sterk heilsugæsla um allt land Alma D. Möller,Jón Magnús Kristinsson Skoðun Nýi Landspítalinn: klúður sem enginn þorir lengur að ræða Sigurður Sigurðsson Skoðun Halldór 31.01.26 Halldór Að loka á foreldri er ekki einfaldasta leiðin Sahara Rós Blandon Skoðun Kæra heilbrigðisráðherra, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun
„