Ævintýralegar vinsældir Red Dead Redemption Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 9. nóvember 2018 07:00 Take-Two Interactive, eigandi Rockstar, hefur greint frá því að á fyrstu átta dögunum hafi leikurinn selst í heilum sautján milljónum eintaka.
Það er ekki hægt annað en að segja að tölvuleikjaunnendur hafi tekið Red Dead Redemption 2, úr smiðju Rockstar Studios, opnum örmum. Í leiknum er spilað í gegnum ævintýri útlagans Arthurs Morgan í Villta vestrinu en þótt leikurinn kallist númer tvö er á ferðum forsaga fyrri leiksins, Red Dead Redemption. Take-Two Interactive, eigandi Rockstar, hefur greint frá því að á fyrstu átta dögunum hafi leikurinn selst í heilum sautján milljónum eintaka. Þannig hafi hann selst í fleiri eintökum en fyrirrennarinn gerði á átta árum. Samkvæmt frétt Fortune gerðu greinendur ráð fyrir því að tíu til tólf milljónir eintaka myndu seljast á fyrstu þremur mánuðunum. „Við erum afar ánægð með hvernig þetta gengur. Við höfum selt meira en sautján milljónir eintaka. Til þess að setja þá sölu í samhengi þá eru það fleiri eintök en seljast af flestum tölvuleikjum alla þeirra stafrænu ævi,“ sagði forstjórinn Strauss Zelnick við Fortune. Áður hafði fyrirtækið sagt frá því að leikurinn hafi selst fyrir 725 milljónir dala fyrstu þrjá dagana. Einungis einn leikur hefur toppað þá tölu og það er Grand Theft Auto V, einnig úr smiðju Rockstar. Gagnrýnendur eru alveg jafnhrifnir af Red Dead og aðrir. Samkvæmt meðaltali dóma sem Metacritic tekur saman fær leikurinn 97 af 100 og hefur enginn leikur fengið betri einkunn í ár. Sé horft til bestu leikja allra tíma deilir Red Dead sjötta sætinu með fjölmörgum leikjum. Enginn hefur fengið 100 stig en The Legend of Zelda: Ocarina of Time situr efst með 99.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Red Dead Redemption 2: Líklega besti leikur þessarar kynslóðar Hann er í stuttu máli sagt; stórkostlegur og líklega besti leikur þessarar kynslóðar leikjatölva, en auðvitað er hann ekki gallalaus. 31. október 2018 09:00 Mest lesið Ástin blómstrar hjá Steinunni Lífið Stormur fellur á prófinu Gagnrýni Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Lífið Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Lífið Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Lífið Langaði í fleiri ævintýri og fluttu því frá Íslandi Lífið Skaust fyrr af æfingu og sótti milljónir í verðlaunafé Lífið Með engan áhuga á kynlífi og vill ekki ræða það Lífið Silfurrefurinn George Clooney á bak og burt Lífið Stórafmælið hefur afleiðingar Lífið Fleiri fréttir GameTíví: Stefna á fugl í PGA 2K25 Avowed: Í senn hefðbundinn og framúrskarandi hlutverkaleikur GameTíví: Erfið fjallganga hjá strákunum Kingdom Come Deliverance 2: Geggjuð fyrirsögn um geggjaðan leik Gráir fyrir járnum í GameTíví Sniper Elite: Resistance - Fátt nýtt í annars allt í lagi leik Sjá meira
Red Dead Redemption 2: Líklega besti leikur þessarar kynslóðar Hann er í stuttu máli sagt; stórkostlegur og líklega besti leikur þessarar kynslóðar leikjatölva, en auðvitað er hann ekki gallalaus. 31. október 2018 09:00