Innlent

Umferðartafir á Suðurlandsvegi vegna bilunar í hitaveituæð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vegfarendur eru því beðnir um að sýna ýtrustu aðgæslu við Ytri-Rangá hjá Hellu.
Vegfarendur eru því beðnir um að sýna ýtrustu aðgæslu við Ytri-Rangá hjá Hellu. Vísir/pjetur
Umferðartafir verða á Suðurlandsvegi um brúna á Ytri-Rangá við Hellu síðdegis í dag og fram á nótt vegna bilunar í hitaveituæð sem fer um brúna, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. 

Akrein til austurs um brúna er lokuð og því einungis um eina akrein að fara þegar ekið er yfir ána. Vegfarendur eru því beðnir um að sýna ýtrustu aðgæslu við Ytri-Rangá hjá Hellu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×