Innlent

Handtekinn vegna líkamsárásar í Vesturbænum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Tveir karlmenn tókust á í íbúðinni.
Tveir karlmenn tókust á í íbúðinni. Vísir/Vilhelm
Karlmaður var í morgun handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna gruns um líkamsárás sem átti sér stað inni í íbúð í Vesturbæ Reykjavíkur. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Komið hafði til átaka milli tveggja karlmanna inni í íbúðinni þannig að annar þeirra hlaut skurð á höfði. Hann var fluttur á slysadeild LSH í Fossvogi til skoðunar og aðhlynningar.

Á níunda tímanum í morgun var svo tilkynnt um innbrot og þjófnað í skóla í Kópavogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×