Innlent

Fíkniefnasveit tekur til starfa á Suðurlandi

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Fjölmenni sótti íbúafundinn í Hótel Seflossi í gærkvöldi þar sem fíkniefnamál voru til umræðu og staðan í málaflokknum.
Fjölmenni sótti íbúafundinn í Hótel Seflossi í gærkvöldi þar sem fíkniefnamál voru til umræðu og staðan í málaflokknum. Magnús Hlynur Hreiðarsson
Á fjölmennum íbúafundi á Selfossi í gærkvöldi um fíkniefnamál kom meðal annars fram hjá Árna Felix Gíslasyni lögreglumanni að Lögreglan á Suðurlandi vinni nú að því að koma á laggirnar fíkniefnasveit. Hún mun hafa það hlutverk að reyna að koma í veg fyrir sölu og dreifingu fíkniefna á svæðinu auk þess að vinna að öflugu forvarnarstarfi.

Teymið verður skipað ellefu lögreglumönnum af öllu Suðurlandi auk fíkniefnahundsins Vinkils af Litla Hrauni.

Íbúafundurinn var haldin í tilefni myndarinnar „Lof mér að falla“, en foreldrum í Árborg var boðið á myndina áður en fundurinn hófst.

Framsögumenn voru Berglind Ósk Guðmundsdóttir, systir Kristínar Gerðar sem myndin er m.a. byggð á, Jóhannes Kr. Kristjánsson, blaðamaður og faðir dóttur sem dó vegna fíkniefnaneyslu og Anný Ingimarsdóttir frá Félagsþjónustu Árborgar, auk Árna Felix.

Árni Felix, lögreglumaður sem mun stýra nýja fíkniefnahópnum en hann var með framsögu á íbúafundinum í gærkvöldi.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Lögregluna vantar fíkniefnahund

Lögreglan á Suðurlandi á engan fíkniefnahund en segist vanta slíkan hund sárlega. Ekki hefur fengist fjármagn til kaupa á hundi. 

„Já, okkur vantar sárlega hund og þiggjum alla aðstoð við kaup á slíkum hundi. Góður fíkniefnahundur er gulls ígildi þegar við ætlum að fara að leggja miklu meiri áherslu á fíkniefnamál en við höfum getað gert síðustu ár,“ segir Rannveig Brynja Sverrisdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi.



Tólf til þrettán ára börn í fíkniefnaneyslu

Í máli Árna Felix kom fram að lögreglan fengi á sitt borð fíkniefnamál sem snerta tólf til þrettán ára börn, sem væri grafalvarlegt.

Þá kom fram að börnum í Árborg verður ekki boðið að sjá myndina „Lof mér að falla“ í Bíóhúsinu á Selfossi í boði Sveitarfélagsins Árborgar eins og bæjarráð hafði samþykkt.

Ástæðan er ákvörðun fornvarnarhóps sveitarfélagsins sem vill frekar útbúa sitt eigið fræðsluefni og fara með inn í skólana.


Tengdar fréttir

Efast um hópferðir barna á Lof mér að falla

Rótin, félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda, efast stórleg um forvarnargildi kvikmyndarinnar Lof mér að falla. Rúmlega 40 þúsund manns hafa séð mynd Baldvins Z og Birgis Arnar Steinarssonar sem fjallar um tvær stúlkur og baráttu þeirra við fíkniefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×