Bjarni Ben og Páll Óskar ræða sín fyrstu skipti Stefán Árni Pálsson skrifar 3. október 2018 16:00 Palli og Bjarni tóku glaðir þátt.
Fimm hafnfirsk ungmenni sem vinna að leiksýninguni „Fyrsta skiptið“ hafa undanfarna daga farið óhefðbundnar leiðir í kynningarstarfi. Þannig hafa þau Arnór, Berglind Alda, Inga Steinunn, Mikael Emil og Óli Gunnar flakkað vítt og breitt um bæinn og spurt þjóðþekkta Íslendinga um sín „fyrstu skipti“. Í leikritinu verður fjallað um málefni sem margir álíta viðkvæm og persónuleg, á borð við fyrsta kossinn, fyrstu ástina og fyrstu kynlífsreynsluna. Út í þetta spyrja þau þá sem á vegi þeirra verða, taka upp á síma og birta á netinu.Ráðherrann ræddi bara kossinn Meðal þeirra sem ræða málin við krakkana eru fjármálaráðherrann og formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson og skemmtikrafturinn Páll Óskar Hjálmtýsson. Ráðherrann vildi þó ekki ganga lengra en að segja lauslega frá fyrsta kossinum. „Ég var í barnaskóla til tólf ára aldurs, sem nú heitir grunnskóli. Áður en ég fór í gagnfræðiskólann, eins og þá hét, þá var svolítið kossaflens í okkar barnaskólabekk og þá kom fyrsti kossinn. Þá var ég ellefu ára,“ segir Bjarni.Palli pikkaði upp eldri mann í Vesturbæjarlaug Páll Óskar var aftur á móti tilbúinn að deila mun meiru og segir frá fyrstu kynlífsreynslunni, eftir sundferð í Vesturbæjarlaug þegar hann var sautján ára gamall. „Í heitu pottunum þá var það bara ég sem pikkaði þennan gaur upp. Ég var sautján ára, hann var þrjátíu og eins. Við elskuðum þetta. Ég lét það sko ekki stoppa mig, við fórum heim til hans,“ segir Páll Óskar. Frásögnina má sjá í heild sinni í þætti kvöldsins af Íslandi í dag, ásamt viðtali við aðstandendur sýningarinnar. Þátturinn hefst klukkan 18:55, strax eftir kvöldfréttir í opinni dagskrá á Stöð 2.
Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Sjá meira