Aldís nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Birgir Olgeirsson skrifar 28. september 2018 11:42 Aldís Hafsteinsdóttir í ræðustól á þinginu. Tryggvi Páll Tryggvason
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði er nýr formaður íslenskra sveitarfélaga og jafnframt fyrsta konan til að gegna formennsku í 73 ára sögu félagsins. Formannskjörið var í morgun á þrítugasta og öðru landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Halldór Halldórsson, fráfarandi formaður, tilkynnti fyrr á þessu ári, að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Í framboði voru Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ en alls höfðu 149 landsþingsfulltrúar kosningarétt á þinginu sem fer fram í Hofi, Akureyri. Aldís fékk 91 atkvæði á móti 49 atkvæðum Gunnars. Aldís segir ánægjulegt að hafa verið kjörin fyrsta konan til að gegna þessu embætti. „Það fannst mörgum það vera tímabært, í ljósi alls, að kona kæmist til forystu í þessum samtökum sem fagna 80 ára afmæli brátt. Þannig að það er mjög ánægjulegt að vera fyrst til að brjóta þennan múr,“ segir Aldís í samtali við fréttastofu. Hún segist fyrst og fremst vilja efla sveitastjórnarstigið í starfi sínu sem formaður. „Sveitarfélögin á Íslandi eru mikilvægustu einingarnar í nærþjónustu við íbúana og sem slík skipta þau gríðarlega miklu máli. Það þarf að tryggja sveitarfélögunum aukna tekjustofna til að geta sinnt þeim fjölmörgu og fjölbreyttu verkefnum sem þau þurfa að sinna. Það verður auðvitað stærsta verkefnið,“ segir Aldís. Hún telur sig geta orðið góðan brúarsmið milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðsins enda hafi hún lengi verið bæjarstjóri í Hveragerði, sem er í túnfæti Reykjavíkur. „Þessi svæði hafa átt mjög nána samvinnu og hvorugt getur án hins verið.“
Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira