Lögreglan leitar þriggja manna Birgir Olgeirsson skrifar 28. september 2018 15:59 Mennirnir þrír sem leitað er að. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af mönnunum vegna máls sem hún hefur til meðferðar, og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar eru mennirnir grunaðir um að hafa stolið háum fjárhæðum af eldra fólki um helgina. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því á samfélagsmiðlum á sunnudag að upp hafi komið nokkur mál þar sem greiðslukortum hafi verið stolið af fólki og í beinu framhaldi verið reynt að taka fé út úr hraðbönkum með kortunum. Grunur leikur á að þjófarnir hafi komist yfir PIN númerin kortanna þegar þau voru notuð. „Þetta eru mjög alvarleg mál, það verður að segjast eins og er, það er hvernig ráðist er að fólki með þessu hætti,“ sagði Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Sjá einnig: Háum fjárhæðum stolið af eldra fólki um helgina „Þetta eru tugir þúsunda í einhver skipti og síðan sá ég í nýjasta málinu að það var á fimmta hundrað þúsund og í þessu tilviki núna um helgina að þá voru þetta konur sem voru þolendur í öllum málunum,“ sagði Skúli. Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið adalsteinna@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinuLögreglan á höfuðborgarsvæðinuLögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira