Lof mér að falla með íslenska landsliðinu Benedikt Bóas skrifar 11. september 2018 06:00 Íslenska fótboltalandsliðið var ekki í sama gæðaflokki og Lof mér að falla þegar það steinlá fyrir Sviss. Vísir/EPA
Venju samkvæmt horfði íslenska landsliðið í fótbolta á kvikmynd kvöldin fyrir landsleikina gegn Sviss og Belgíu. Horfði liðið á Lof mér á falla fyrir skellinn gegn Sviss en í gær var blásið í gleðilúðrana og settist liðið niður með þáttaröðinni Suðurameríski draumurinn. Lof mér að falla sló í gegn um helgina á Íslandi og er frumsýning hennar fjórða stærsta opnun frá upphafi á íslenskri kvikmynd og stærsta frumsýningarhelgi á íslenskri mynd síðan 2016 – aðeins Mýrin, Bjarnfreðarson og Eiðurinn hafa þénað meira á frumsýningarhelgi. Rúmlega 8.300 gestir kíktu á myndina en ekki er vitað hvort þeir sem eru í íslenska hópnum voru taldir með. Strákarnir voru eðlilega í litlu stuði til að ræða myndina þegar eftir því var leitað í St. Gallen en liðið hefur fengið að njóta margra mynda áður en þær fara í sýningar. Þannig hefur hópurinn séð Everest, Vonarstræti, Borgríki 2 og Undir trénu, svo nokkrar myndir séu nefndar, á undan öllum öðrum. Auðunn Blöndal, einn af þátttakendum í Suðurameríska draumnum, segir að það sem hann hafi séð af þáttaröðinni lofi virkilega góðu. Þættirnir eru þekktir fyrir mikið grín og mikið gaman þar sem Auðunn, Steindi, Sveppi og Pétur Jóhann sprella á erlendri grundu og ættu því að geta þurrkað skelfinguna í St. Gallen út úr huga landsliðsmanna Íslands. Landsliðið leikur gegn Belgum í dag en þetta er fyrsti heimaleikur Eriks Hamrén með liðið. Hann sagði þegar hann tók við að hann ætlaði að halda í hefðir og venjur og greinilegt að hann er maður orða sinna.Undir trénu var sýnd í Finnlandi í fyrra. Hér eru aðalleikararnir Steindi jr., Edda Björgvins og Siggi Sigurjóns.Lof mér að falla. Baldvin Z leikstjóri og leikkonurnar Elín Sif og Eyrún Björk.vísir/stefánBaltasar Kormákur sýndi strákunum Everest.Vonarstræti var frumsýnd í Ríga í Lettlandi árið 2014 fyrir landsliðið.Landsliðið horfði á Borgríki 2 í Tékklandi árið 2014.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira