Birtir daglega veðurspá og stekkur í fallhlíf 95 ára gamall: „Gagnlegt að hafa einhvern tilgang“ Stefán Árni Pálsson skrifar 12. september 2018 13:30 Páll Bergþórsson birtir veðurspá á hverjum degi.
Þrátt fyrir að vera 95 ára gamall er veðurfræðingurinn og fyrrverandi Veðurstofustjórinn Páll Bergþórsson hvergi banginn, en líkt og frægt er orðið fór hann í sitt fyrsta fallhlífarstökk á dögunum. Fjallað verður um þennan merkilega mann í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld. Þess utan situr hann þó ekki auðum höndum og birtir t.a.m. daglega veðurspá á Facebook síðu sinni tíu daga fram í tímann. Fjölmargir fylgjast með spánni á hverjum morgni, enda á Páll tæplega fimm þúsund vini á miðlinum. „Eftir að ég var orðinn ekkjumaður, þá var ekki þörf fyrir mig lengur. Ég fylgdist með konunni minni meðan hún var á dvalarheimili, en svo fannst mér ég vera orðinn eitthvað svona umkomulaus og atvinnulaus svo ég tók upp á því að fara að útbúa spár á Fésbókinni og senda þær á hverjum morgni og hef gert það í fimm ár síðan,“ segir Páll. Auk þess hefur hann undanfarið unnið að umfangsmikilli vísindagrein um þróun veðurfars á jörðinni til næstu aldamóta, sem er vel á veg komin. „Mér finnst sérstaklega gagnlegt að hafa einhver tilgang, hafa einhver verkefni,“ segir Páll og gantast með að þessu ætli hann allavega að ljúka áður en hann verður 100 ára gamall.Rætt verður við Pál í Íslandi í dag klukkan 18:55, strax eftir kvöldfréttir. Þar fá áhorfendur einnig að fylgjast með fyrsta fallhlífarstökkinu frá ýmsum sjónarhornum. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan.
Mest lesið Nicholas Brendon er látinn Lífið Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Lífið Fór lögblind í gegnum doktorsnám Lífið Landsliðsmaður í ADHD sem lifir á húmornum Lífið Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Lífið Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Lífið Misheppnaður mömmuleikur Gagnrýni Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Lífið samstarf Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Menning Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Menning Fleiri fréttir Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Nicholas Brendon er látinn Fór lögblind í gegnum doktorsnám Landsliðsmaður í ADHD sem lifir á húmornum Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Alaska 1867 er nýliði ársins Ástrós og Adam eiga von á öðru Gjörbreytti íbúðinni með einni tilfærslu Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Magnús Hlynur í Efstaleitið Afroman fagnaði sigri gegn sjö lögregluþjónum Þegar kvikmyndagerðar- og tónlistarfólk kemur saman gerast ótrúlegir hlutir Helstu einkenni breytingaskeiðsins og mögulegar lausnir Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Hvað veistu um… Akureyri? Gæðastund með gæðablóðum Ástrós getur elskað fleiri en einn í einu: „Hvernig hefurðu tíma í þetta?“ Hollywood-stjarna blastar íslenskri hljómsveit „Mikilvægast að vera með hreina samvisku“ „Þetta var alltaf stóri draumurinn“ Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Neto skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Sjá meira