Fjórir íslenskir atvinnukylfingar verða á meðal keppenda á Evrópumóti í liðakeppni atvinnukylfinga sem fram fer á Gleneagles vellinum í Skotlandi dagana 8.til 12. ágúst en þetta kemur fram á heimasíðu Golfsambands Íslands.
Í ár er keppt um Evrópumeistaratitla í fjölmörgum íþróttagreinum á sama tíma í Glasgow og er golfmótið hluti af þeirri keppni. EM í hjólreiðum, fimleikum, róðri og þríþraut fer fram í Glasgow á þessum tíma einnig. Á sama tíma fer fram EM í frjálsíþróttum í Berlín.
Alls eru sextán þjóðir sem taka þátt í EM í golfi og er hvert lið skipað tveimur leikmönnum. Axel Bóasson (GK) og Birgir Leifur Hafþórsson (GKG) verða saman í liði. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) verða saman í liði.
Ólafía Þórunn segir að hún sé spennt fyrir því að fá tækifæri að leika fyrir Ísland á þessu móti. „Ísland hefur náð frábærum árangri í mörgum íþróttagreinum á heimsvísu að undanförnu. Markmiðið er að koma golfíþróttinni á kortið einnig. Þetta mót lofar góðu, skemmtilegt keppnisfyrirkomulag, og er upphaf að einhverju enn stærra,“ sagði Ólafía Þórunn meðal annars í viðtali við skipuleggjendur mótsins.
Nánar um mótið af heimasíðu Golfsambands Íslands:
Verðlaunaféð skiptist jafnt niður í karla- og kvennaflokki. Keppt er í liðakeppni í karla – og kvennaflokki og einnig verður leikin 18 holu keppni með blönduðum liðum.
Hver þjóð má að hámarki vera með þrjú lið í hverri keppni. Bretar eru með þrjú lið í bæði karla – og kvennaflokki, Svíar koma þar næstir með tvö karlalið og þrjú í kvennaflokki.
Eins og áður segir er keppt á Gleneagles vellinum þar sem að Ryderkeppnin fór fram árið 2014. Solheim bikarinn fer fram á þessum velli árið 2019.
Keppnisfyrirkomulagið er holukeppni á milli liða sem eru skipuð tveimur leikmönnum. Alls eru 16 lið sem keppa og er þeim skipt upp í fjóra riðla.
Hvert lið leikur þrjá leiki í riðlinum og þar sem betra skor hjá liðinu telur á hverri holu (fjórbolti/fourball)
2 stig fást fyrir sigur í leik og 1 stig fyrir jafntefli.
Efstu liðin úr hverjum riðli komast í undanúrslit.
Ólafía Þórunn og Valdís Þóra saman í liði á EM í golfi
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


Grealish og Foden líður ekki vel
Enski boltinn


Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld
Íslenski boltinn





