Innlent

Gengið illa að manna og biðlistar yfirvofandi í heimahjúkrun

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Fyrirsjáanlegt er að draga þurfi úr þjónustu hjá heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu Reykjavíkurborgar þar sem illa hefur gengið að manna stöður fyrir sumarið. Þetta segir Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunar- og húsnæðismála hjá Reykjavíkurborg, sem nýverið sendi landlækni, Landspítalanum, ráðuneytinu, sjúkratryggingum og heilsugæslunni erindi þar sem hún varaði við þessu.

„Það þýðir í raun að það myndast biðlistar í heimahjúkrun, sem alla jafna er ekki yfir árið. Við reynum að stýra þessu þannig að léttari verkefni fari yfir á félagslegu heimaþjónustuna tímabundið,“ segir Berglind.

Hún segir að undanfarin sumur hafi þetta verið tilfellið í þessari þjónustu. Álagið á heimaþjónustuna alla, bæði heimahjúkrun og félagslegu heimaþjónustuna verði meira, þar sem Landspítalinn loki mörgum af sínum deildum.

„Þetta fer ekki vel saman, þegar álagið eykst hjá okkur og við bætast erfiðleikar við að manna stöður hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða auk almennra starfsmanna í félagslega heimaþjónustu“

„Það jákvæða við hrunið var að þá áttum við auðveldara með að fá starfsfólk. Nú bætist við að það er meira um lokanir á Landspítalanum en áður. Við sjáum því fram á erfiðara sumar hvað það varðar að skortur á hjúkrunarfræðingum á Landspítalanum hefur afleiðingar. Staðan hjá okkur í að manna stöður er ekki endilega verri en síðasta sumar.“

Berglind vísar því á bug að vegna stöðunnar sem upp sé komin sé verið að vísa aðstandendum og fjölskyldu á einkarekna möguleika á borð við Sinnum ehf. að fyrra bragði.

„Það gerum við ekki og höfum ekki heimild til, en auðvitað þegar fólk spyr okkur hvert það geti leitað þá upplýsum við það um fyrirtæki sem sinna þessu. Ef fólk er að spyrja.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×