Viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna yfirgefinnar tösku Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. maí 2018 18:29 Taskan fannst í suðurbyggingu vallarins á sjötta tímanum í dag. vísir/STEFÁN
Sprengjusveit lögreglu var kölluð út um klukkan 18 í dag vegna yfirgefinnar tösku í suðurbyggingu Keflavíkurflugvallar. Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, við Vísi. Taskan, sem hafði annað hvort gleymst eða verið skilin eftir að sögn Guðjóns, fannst í suðurbyggingu vallarins á sjötta tímanum í dag. Við fundinn var gerð svokölluð snefilatuhugun á töskunni og út úr henni kom rauð niðurstaða, þ.e. að mögulega væri sprengiefni á eða í töskunni. Þá var haft samband við lögreglu sem bað um aðra snefilathugun. Úr þeirri könnun kom græn niðurstaða, sem þýðir að ekkert sprengiefni mælist. Lögregla tók þá ákvörðun um að nýta atvikið sem æfingu á viðbragðstíma. Guðjón segir fólk þá hafa verið fært frá svæðinu í kringum töskuna. Samkvæmt upplýsingum frá viðmælanda Vísis á vettvangi vísaði lögregla öllum sem staddir voru í grennd við veitingastaðinn Mathús í suðurbyggingu Keflavíkurflugvallar, þar sem taskan fannst, niður í kjallara. Þegar þar var komið sögu hafði sprengjusveit lögreglu verið kölluð út og var á leiðinni. Sprengjusveitin hefur nú lokið störfum á vettvangi. Atvikið hafði engin áhrif á flug. Þá gat Guðjón ekki sagt til um afdrif töskunnar.Uppfært klukkan 19:10: Lögregla hefur lokið störfum á vettvangi og þá hefur töskunni verið komið fyrir á meðal óskilamuna á Keflavíkurflugvelli, að sögn Guðjóns Helgasonar upplýsingafulltrúa Isavia. Þá segir hann æfinguna hafa gengið vel.Fréttin hefur verið uppfærð.Frá Keflavíkurflugvelli í kvöld. Farið var með viðstadda niður í kjallara suðurbyggingar vallarins eftir að sprengjusveit lögreglu var kölluð út.Mynd/Aðsend
Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira