Sjáðu markasúpuna sem tryggði Val Lengjubikarinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. apríl 2018 13:41
Valur sýndi að það er besta liðið á Íslandi þegar að það vann Grindavík, 4-2, í úrslitaleik Lengjubikarsins á Eimskipsvelli Þróttara í Laugardalnum í gærkvöldi. Haukur Páll Sigurðsson og Guðjón Pétur Lýðsson skoruðu sitthvort markið fyrir Valsmenn sem komust í 2-0 og 3-1 en Sigurður Egill Lárusson stal senunni með tveimur mörkum og stoðsendingu í seinni hálfleik. Valsmenn, sem urðu Íslandsmeistarar með yfirburðum síðasta sumar, fóru rólega af stað í Reykjavíkurbikarnum í vetur en settu í fluggírinn í Lengjubikarnum. Liðið vann alla fimm leiki sína í riðlakeppninni og tók svo Stjörnuna, 3-1, í undanúrslitum. Í heildina vann Valur sjö leiki í Lengjubikarnum með markatölunni, 21-4. Grindavík var fyrir leikinn búið að spila sex leiki í Lengjubikarnum og fá aðeins á sig tvö mörk en Valur tvöfaldaði það á 90 mínútum. Valur á eftir einn mótsleik áður en Pepsi-deildin hefst en það er Meistaraleikur KSÍ á móti bikarmeisturum ÍBV 19. apríl. Grindjánar eru búnir fram að móti en þeir mæta FH í fyrstu umferð 28. apríl. Valur spilar stórleik á móti KR 27. apríl klukkan 20.00 sem verður annar af tveimur upphafsleikjum Pepsi-deildarinnar 2018. Mörkin úr leiknum í gær má sjá hér að ofan.
Íslenski boltinn Mest lesið Þór - Víkingur | Botnliðið gegn toppliðinu Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Fleiri fréttir Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Þór - Víkingur | Botnliðið gegn toppliðinu Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé Bríet Fjóla keypt til Þróttar Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Sjá meira