Hlýnar smám saman í vikunni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. apríl 2018 08:38 Spákort fyrir hádegið í dag. Það verður kannski ekki hlýtt alls staðar en víðast hvar bjart af kortinu að dæma. veðurstofa íslands
Það mun hlýna smám saman á landinu nú í vikunni ef marka má hugleiðingar veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar kemur fram að útlit sé fyrir að miðvikudagur og fimmtudagur verði hlýjustu dagarnir í vikunni en spár gera svo ráð fyrir að það kólni dálítið um næstu helgi. „Hins vegar til að fá svona hlýindi þarf að fá loft ættað langt sunnan úr höfum og því fylgir gjarnan væta og þannig verður það einnig í þetta sinn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Það verður þó ójafnt gefið hvað úrkomuna varðar því rigningin verður aðallega bundin við vestanvert landið og svo eitthvað austur með Suðurlandinu. Aðrir landshlutar gætu síðan fengið einhverja úrkomu um helgina þegar það kólnar á ný.Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga:Austan- og suðaustan 8-15 m/s S- og V-til, hvassast við ströndina, en annars hægari. Dálitlar skúrir eða él á S-verðu landinu, en annars yfirleitt bjartviðri. Hiti víða 1 til 7 stig að deginum, en á köflum talsvert frost í innsveitum í nótt.Suðlægari og hlýnar heldur á morgun, annars svipað veður.Á þriðjudag:Suðaustan 8-15 m/s og dálítil súld S- og V-lands, hvassast við ströndina, en annars hægari og þurrt. Hlýnar í veðri og hiti 2 til 8 stig síðdegis, mildast V-ast.Á miðvikudag:Sunnan- og suðaustanátt, 10-15 m/s og rigning á V-verðu landinu, en annars hægari og bjartviðri NA-lands. Hiti víða 3 til 8 stig.Á fimmtudag:Fremur mild suðlæg átt og rigning með köflum vestantil, en annars þurrt.Á föstudag:Austlæg og síðar breytileg átt og víða rigning. Hiti 3 til 8 stig að deginum.Á laugardag:Austlæg átt og rigning A-lands, en hæg vestlæg átt og þurrt að mestu vestantil. Heldur svalara.Á sunnudag:Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt með úrkomu í flestum landshlutum. Hiti 0 til 6 stig fyrir daginn.
Veður Mest lesið Starfsmaður ríkissaksóknara sagður hafa játað refsiverð brot Innlent Leysa brátt frá skjóðunni um leiðtoga Miðflokksins í borginni og nafnaleikurinn hafinn Innlent Tíu ung börn voru orðin verkjuð og hjólbeinótt vegna beinkramar Innlent Jóhanna ætlar ekki aftur fram Innlent Tortryggnir í garð tolla Trumps Erlent Óttast að María sé að stela athyglinni frá Jesú á samfélagsmiðlum Erlent Heiðra minningu Sigurðar Kristófers með Neyðarkallinum í ár Innlent Fólk hafi varann á þegar PIN-númer eru slegin inn Innlent Játaði hópnauðgun og vildi komast í frí til heimalandsins Innlent Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Erlent Fleiri fréttir Leysa brátt frá skjóðunni um leiðtoga Miðflokksins í borginni og nafnaleikurinn hafinn Handteknir fyrir að hafa í hótunum við leigubílstjóra Starfsmaður ríkissaksóknara sagður hafa játað refsiverð brot Heiðra minningu Sigurðar Kristófers með Neyðarkallinum í ár Jóhanna ætlar ekki aftur fram Rósa Guðbjarts hætt í bæjarstjórn Fólk hafi varann á þegar PIN-númer eru slegin inn Tíu ung börn voru orðin verkjuð og hjólbeinótt vegna beinkramar „Mér finnst þetta bara klaufaskapur“ Vill að þingið skoði mál Ríkisendurskoðanda Fleiri grunaðir en þeir sem voru handteknir Víðfeðm rannsókn, vasaþjófar og börn með beinkröm Þrír vasaþjófar handteknir á Þingvöllum Játaði hópnauðgun og vildi komast í frí til heimalandsins Innsigluðu sex gististaði vegna skorts á leyfum Vasaþjófar höfðu fúlgur fjár af eldri mönnum og ferðamanni „Þau eru mjög æst í stærðfræði!“ „Þetta ástand hefur viðgengist í allt of langan tíma“ Fengu ekki að fylgjast með meintri vændisstarfsemi í leyni Léttir að vinnan í faraldrinum hafi verið lögmæt Níu af hverjum tíu foreldrum leikskólabarna í Reykjavík ánægðir en mælingin ekki samanburðarhæf Situr í súpunni eftir að hafa selt bankaþjófi jeppa Rætt við ráðherra sem svarar gagnrýni og ósáttan Litháa sem flæktist í bankaránið umfangsmikla Bein útsending: Hvernig skilar jarðhitafræðsla sér í sjálfbærri þróun í orkumálum í samstarfslöndum? Ferðin á Keflavíkurflugvöll það erfiðasta við utanlandsferðina Hæstiréttur ógildir skammir Persónuverndar í garð ÍE Óttast að stóru stofurnar gætu orðið einræðisherrar í eftirliti Reikna með tveggja daga aðalmeðferð í máli Alberts Stóladans þingmanna lækkar launatékka Karls Gauta en hækkar Bergþórs Ökutæki viðbragðsaðila verða áberandi vegna æfingar Sjá meira
Bein útsending: Hvernig skilar jarðhitafræðsla sér í sjálfbærri þróun í orkumálum í samstarfslöndum?