Prófkjöri Pírata í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði lauk klukkan 15 í dag en tilkynnt var um niðurstöður prófkjörsins klukkan 16. Dóra Björt Guðjónsdóttir skipar fyrsta sæti á lista Pírata í Reykjavík, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir annað sæti og í þriðja sæti er Alexandra Briem.
Í Kópavogi er Sigurbjörg Erla Egilsdóttir í fyrsta sæti, Hákon Helgi Leifsson í öðru og í því þriðja er Ásmundur Alma Guðjónsson. Í Hafnarfirði skipar Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir fyrsta sæti á lista, Kári Valur Sigurðsson annað og Hildur Björg Vilhjálmsdóttir það þriðja.
Sveitarstjórnarkosningar fara fram þann 26. maí næstkomandi. Hér að neðan má sjá alla sem skipa sæti á lista hjá Pírötum í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði.
284 greiddu atkvæði í prófkjöri Pírata í Reykjavík og eru niðurstöður eftirfarandi:
1. Dóra Björt Guðjónsdóttir
2. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir
3. Alexandra Briem
4. Rannveig Ernudóttir
5. Bergþór H. Þórðarson
6. Valgerður Árnadóttir
7. Kjartan Jónsson
8. Arnaldur Sigurðarson
9. Þórgnýr Thoroddsen
10. Elsa Nore
11. Þórður Eyþórsson
12. Salvör Kristjana Gissurardóttir
13. Svafar Helgason
14. Ævar Rafn Hafþórsson
15. Helga Völundardóttir
16. Þórlaug Ágústsdóttir
17. Birgir Þröstur Jóhannsson
18. Ólafur Jónsson
19. Elías Halldór Ágústsson
Þá greiddu 208 atkvæði í prófkjöri Pírata í Kópavogi og eru niðurstöður eftirfarandi:
1. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
2. Hákon Helgi Leifsson
3. Ásmundur Alma Guðjónsson
4. Heiða Rut
5. Matthías Hjartarson
195 greiddu atkvæði í prófkjöri Pírata í Hafnarfirði og eru niðurstöður eftirfarandi:
1. Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir
2. Kári Valur Sigurðsson
3. Hildur Björg Vilhjálmsdóttir
4. Hallur Guðmundsson
5. Haraldur R. Ingvason
6. Ragnar Unnarsson
7. Hlynur Guðjónsson
Innlent