Íslenskur karlmaður sagður alvarlega slasaður eftir bílslys á Möltu Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. mars 2018 13:57 Þrír voru í bílnum þegar slysið varð. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er sagður liggja alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir bílslys á Möltu, að því er fram kemur í maltverskum fjölmiðlum. Utanríkisráðuneytið hefur sett sig í samband við ræðismann Íslands á Möltu vegna málsins. RÚV greindi frá fyrst íslenskra fjölmiðla. Lögreglu barst tilkynning um slysið seint á þriðjudagskvöld, sem varð í maltverska bænum Għaxaq. Talið er að ökumaður bifreiðar, kona á þritugsaldri, hafi misst stjórn á bílnum og hann hafnað framan á íbúðarhúsi. Samkvæmt fréttum maltverska fjölmiðla voru tveir farþegar í bílnum, maltversk kona á þrítugsaldri og íslenskur karlmaður á fertugsaldri, og voru þau flutt alvarlega slösuð á Mater-Dei-sjúkrahúsið í bænum Msida á austurströnd Möltu. Ökumaður bílsins er hins vegar sagður hafa hlotið minniháttar meiðsl. Sveinn H. Guðmarsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir í samtali við Vísi að ráðuneytið hafi sett sig í samband við ræðismann Íslands á Möltu, Maurice Mizzi, sem hafi sjálfur sett sig í samband við sjúkrahúsið. Sveinn segir jafnframt að ekki hafi verið leitað til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins, sem veitir Íslendingum sem staddir eru erlendis aðstoð, vegna málsins. Þá gat hann ekki staðfest að um Íslending væri að ræða.Fréttin hefur verið uppfærð.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira