Innlent

Skoða hvort hvort barnabækur séu í takt við tímann eða hvort þar megi enn finna staðnaðar staðalmyndir

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Í lok ráðstefnunnar verður tilkynnt hvaða bækur eru tilnefndar til barnabókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar.
Í lok ráðstefnunnar verður tilkynnt hvaða bækur eru tilnefndar til barnabókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar. Teikning/Bergrún Íris Sævarsdóttir
Hin árlega ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir verður nú haldin í 21. sinn í Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Yfirskrift hennar að þessu sinni er, Í hvaða bók á ég heima og verður sjónum einkum beint að því hvort raunveruleiki barnabóka sé annar en raunverulegur raunveruleiki? Birtingarmyndir kynja og kynhlutverka verða skoðaðar og hvort barnabækur séu í takt við tímann eða hvort þar megi enn finna staðnaðar staðalmyndir.

Eliza Reid, forsetafrú, ávarpar ráðstefnugesti og opnar ráðstefnuna. Árni Matthíasson blaðamaður rifjar svo upp heiminn sem birtist í barnabókum æsku hans og veltir því fyrir sér hvort og þá hvernig heimsmynd bókanna mótaði afstöðu hans til lífsins.

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra jafnréttismála hjá SFS heldur svo erindið Háværir strákar og sætar stelpur. Þar fjallar hún meðal annars um það hvaða áhrif hefur dægurmenning á sjálfsmynd og samskipti kynjanna? Er fjölbreytileikinn að verða sýnilegri eða eru staðalmyndir enn ráðandi víða í bókmenntum barna- og unglinga í dag?

Ásta Rún Valgerðardóttir, sálfræðingur, fjallar um fjölskylduformin sem birtast börnum í bókum og hvort þau endurspegli samfélagið. Erlingur Sigvaldason, nemi, heldur svo fjallar svo um barna- og unglingabækur frá sjónarhorni hinsegin fólks.

Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um íslenskar barna- og unglingabókmenntir. Fundarstjóri er fjölmiðlamaðurinn Atli Fannar Bjarkason en viðburðurinn hefst klukkan 10:30.  Í lok ráðstefnunnar verður tilkynnt hvaða bækur eru tilnefndar til barnabókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar.


Tengdar fréttir

Umvefjum börnin tungumálinu

Undanfarnar vikur hafa margir tjáð sig bæði í ræðu og riti um stöðu íslenskra nemenda í lesskilningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×