„Heimskustu þjófar í heimi“ gripnir glóðvolgir Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. febrúar 2018 21:05 Ránið fór ekki samkvæmt áætlun. Vísir/Skjáskot
Tveir karlmenn, sem hugðust brjótast inn í búð í kínversku borginni Sjanghæ snemma á miðvikudagsmorgun, hafa verið uppnefndir „heimskustu þjófar í heimi“ eftir að tilraun þeirra til innbrotsins náðist á myndband. Í myndbandi úr öryggismyndavél á svæðinu, sem lögregla í Sjanghæ birti í vikunni, sjást þjófarnir tveir ganga laumulegir upp að téðri búð með múrsteina, eða eitthvað annað sambærilegt, í hönd. Þeir munda báðir steinana, líklega í þeim tilgangi að brjóta sér leið inn í búðina, og annar þeirra lætur vaða með tilætluðum árangri. Hinn þjófurinn kastar steininum augnabliki seinna en tekst ekki betur til en svo að múrsteinninn hafnar á höfði samverkamannsins, sem fellur vankaður í jörðina. Þá lýkur myndbandsklippunni með því að sá sem kastaði síðari múrsteininum dregur vin sinn úr augsýn. Ekki hafa fengist upplýsingar um afdrif þjófanna eða hvort þeir hafi snúið aftur til að klára verkið. Myndbandið af hinni misheppnuðu ránstilraun má sjá hér að neðan.
Mest lesið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Sjá meira