Tveggja vikna sigling fyrir íslenska HM-fara á Volgu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. janúar 2018 14:45 Ferjan Dmitry Furmanov sem gæti orðið dvalarstaður um 300 Íslendinga í tæpar tvær vikur í júní í Rússlandi.
Til stendur að leigja 300 manna ferju til að sjá stuðningsmönnum karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu fyrir gistingu og flutningi á milli leikstaða á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi í sumar. Hugmyndin kviknaði meðal íslenskra stuðningsmanna sem voru orðnir langþreyttir á að leita að gistingu í Rússlandi og ákváðu að taka málin í eigin hendur. Páll Kristjánsson lögmaður tilheyrir hópi stuðningsmanna sem hafa verið að skoða gistimöguleika í Rússlandi. „Einn sentimetri á korti eru svona þúsund kílómetrar,“ segir Páll en steininn hafi tekið úr þegar þeir töldu sig hafa fundið gistingu i nágrannabæ. Í ljós hafi komið að vegalendin frá nágrannabænum á leikstað var á pari við fjarlægðina frá Egilsstöðum til Reykjavíkur.Um 152 káetur eru í skipinu. Tvær lúxussvítur, tíu einstaklingsherbergi, 128 herbergi með tvíbreiðu rúmi og tólf fjögurra manna herbergi.Leikirnir á skjám „Einn úr hópnum hafði samband við vin sinn sem búið hefur í Rússlandi og spurði hann hvernig ætti að gera þetta. Sá sagðist vera að skoða að leigja ferju til að sigla á milli leikstaða. Þannig kviknaði hugmyndin.“ Um er að ræða ferjuna Dmitry Furmanov sem tekur um 300 manns. Hægt verður að leigja káetu, lítil herbergi eða lúxusherbergi. Hægt verður að horfa á leikina á HM á skjám um borð í bátnum. Þá er allur matur innifalinn, morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur, auk þess sem drykkir verða á góðum kjörum, óáfengir sem áfengir. Í lýsingu á káetum skipsins kemur fram að klósett og sturta séu í þeim öllum, loftkæling, ísskápur og sjónvarp.Morgunmatur, hádegisverður og kvöldmatur er innifalinn.Stíf sigling til Volgograd Fyrirkomulagið verður þannig að ferjan verður við akkeri í Moskvu einum til tveimur dögum fyrir leik Íslands og Argentínu þann 16. júní. Þannig hafi fólk aðgang að gistingu fyrir fyrsta leikinn. Að honum loknum verður látið úr höfn og siglt sem leið liggur suður með Volgu til Volgograd. Þar mætir Ísland Nígeríu þann 22. júní.Borgirnar í Rússlandi þar sem leikið verður á HM. Leikir Íslands verða í Moskvu, Volgograd og Rostov við Don.Wikipedia/Vísindavefurinn„Það verður nokkuð stíf sigling og gefst ekki mikill tími til að stoppa,“ segir Páll. Ferjan verði við akkeri í miðborg Volgograd og eftir þann leik verður svo siglt til Rostov við Don þar sem Ísland mætir Króatíu 26. júní. „Það er styttri leggur þannig að það verða tækifæri til að stoppa frekar á leiðinni.“ Páll segir unnið að því að bjóða upp á leiguflug frá Íslandi til Moskvu fyrir fyrsta leik og svo heim frá Rostov við Don daginn eftir leikinn gegn Króatíu, 27. júní. Um sé að ræða Boeing vélar í samstarfi við rússneskt flugfélag. Verið sé að hnýta nokkra lausa enda en Páll og félagar hafa sett í loftið Facebook-síðu þar sem til stendur að svara fyrirspurnum áhugasamra stuðningsmanna. Ástæðan fyrir því að þeir vilji kynna möguleikann núna sé sú að frestur til að sækja um miða á leikina í Rússlandi renni út á miðvikudaginn, 31. janúar. Um er að ræða lottó hjá FIFA þar sem kemur í ljós að nokkrum vikum liðnum hverjir fá miða.Farþegar geta horft á leikina á skjám um borð eða notið sólarinnar á þilfari ferjunnar.„Við eigum eftir að hnýta nokkra lausa enda en viljum koma því á framfæri til fólks að möguleikinn verði til staðar.“ Páll segir endanlegt verð ekki liggja fyrir en á von á því að gisting í meðalkáetu í 12-13 daga, ferðalagið og allur matur innifalinn kosti vel á þriðja hundrað þúsund krónur. Svo bætist við leiguflugið út sem verið sé að ganga frá. Hann er meðvitaður um að einhverjar efasemdaraddir gætu látið í sér heyra eftir miðasöluvesen á EM í Frakklandi sumarið 2016. „Það eru allir brenndir eftir ævintýri EM,“ segir Páll og leggur áherslu að menn ætli að skipuleggja ferðina vel og örugglega. Unnið sé að því að afla tilskilinna leyfa og réttinda til að ferðin verði að veruleika.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Sjá meira