Íslendingar hugsa grænt Finnur Thorlacius skrifar 5. janúar 2018 09:08 Volkswagen framleiðir fjölmargar gerðir rafmagns- og tengiltvinnbíla.
Hekla hefur fundið fyrir miklum áhuga neytenda á umhverfisvænum bílum, segir í fréttatilkynningu frá Heklu og býður nú vistvæna Volkswagen bíla á hagstæðara verði en nokkru sinni fyrr. Mikil vakning er á umhverfisvænum samgöngum á Íslandi og Volkswagen leggur sitt af mörkum. Með stuðningi Volkswagen getur Hekla nú boðið frábær kjör á vistvænum bílum til viðskiptavina sinna. Volkswagen býður þrjár tegundir vistvænna bíla 1. Tengiltvinnbíla sem keyra eingöngu á rafmagni áður en bensínmótor tekur við. Í þeim flokki býður Volkswagen upp á Golf GTE, Passat GTE og Passant Variant GTE. 2. Metanbíla en þar má finna EcoUp, Polo TGI og Golf TGI. 3. Rafmagnsbíla, en þar býður Volkswagen upp á e-Up og e-Golf. Stjórnvöld hafa ákveðið að halda áfram ívilnun til að stuðla að sölu á vistvænum bílum næstu þrjú árin og vistvænir Volkswagen bílar sem ganga fyrir endurnýtanlegri íslenskri orku (metan og rafmagn) falla í þann flokk. Afsláttur Volkswagen og Heklu er misjafn eftir tegundum en er umtalsverður, t.d. 15% á Passat GTE. Allar nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum Heklu, heimasíðu Heklu og síðast en ekki síst er hægt að kynna sér tilboðsverðið milliliðalaust og í eigin persónu á bílasýningunni í Heklu á laugardaginn. Þar verður meðal annars úrval vistvænna Volkswagen bíla sýndir í Volkswagen salnum.Volkswagen Passat GTE Variant.
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Erlent