Telja að í orðum felist kraftur Guðný Hrönn skrifar 16. desember 2017 13:15 Þóra og Kolbrún segja Nafnspjöldin vera tilvalda gjöf. vísir/eyþór
Þær Kolbrún Pálína og Þóra Sigurðardóttir stofnuðu vefverslunina Nostr, sem sérhæfir sig í veggspjöldum, fyrir ári. Þar ná þær að sameinuðu ástríðu sína fyrir fallegum orðum og hönnun. „Nostr er hugsað sem okkar vettvangur til að fá útrás fyrir sköpunargleðina. Við höfum báðar starfað við fjölmiðla og hér er það ást okkar á tungumálinu og merkingu þess sem fær útrás,“ segir Kolbrún. Stöllurnar hafa mikla trú á að í orðum felist mikill kraftur.„Við erum flest nokkuð lunkin við að nota leiðindaorð en fólki er það síður tamt að nota falleg orð. Það var hugmyndin að baki Nafnspjöldunum.“ „Við byrjuðum með eina útfærsluhugmynd en síðan hefur fólk tekið þessa hugmynd og útfært á ótal vegu. Í flestum tilfellum sendir fólk okkur nafnið á viðkomandi sem það vill gleðja og lýsingarorð með,“ segir Þóra. Nafnaspjöldin eru ekki einu veggspjöldin frá Nostr sem hafa vakið lukku en nýlega bættu þær við stjörnumerkjum sem hafa vakið athygli. „Við erum afar stoltar af stjörnumerkjunum okkar og til að toppa það þá eru þau komin í sölu í Hrím,“ segir Kolbrún. Þær Kolbrún og Þóra vilja benda á að á laugardaginn á milli klukkan 14.00 og 17.00 verða þær með uppákomu ásamt Andreu Magnúsdóttur í verslun hennar í Strandgötunni í Hafnarfirði. „Þar munum við selja myndir á jólatilboði og aðstoða fólk sem hefur áhuga á að panta Nafnspjald.“
Tíska og hönnun Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira