Tökur á áttundu seríu Game of Thrones munu fara fram hér á landi í febrúar næstkomandi. Er búist við að tökurnar muni standa yfir í nokkra daga en ekki er búið að velja hvaða staðir verða fyrir valinu hér á landi. Mun það að einhverju leyti ráðast af snjóalögum og verður því undirbúningur fyrir tökurnar þó nokkur.
Búist er við að meirihluti tökuliðsins hér á landi verði Íslendingar og að einhverjir af leikurum þáttanna komi til landsins. Áttunda serían mun innihalda sex þætti en ekki er vitað að svo stöddu hvenær þessi sería verður frumsýnd. Talið er líklegt að það verði árið 2019.
Tökur á þáttunum hafa farið fram hér á landi áður, en þá voru teknar upp senur fyrir seríur tvö, þrjú, fjögur og sjö.
Hafa þær farið fram á Snæfellsjökli, við Höfðabrekkuheiði, Mývatn, Grjótagjá, Reynisfjöru, við Jökulsárlón og Stakkholtsgjá, svo dæmi séu tekin.
Þá hafa nokkrir Íslendingar farið með hlutverk í þáttunum. Þar á meðal sló Hafþór Júlíus Björnsson í gegn sem Fjallið í fjórtán þáttum, Jóhannes Haukur Jóhannesson kom fyrir í tveimur þáttum í sjöttu seríu, meðlimir Of Monsters and Men léku aukahlutverk í sjöttu seríu og meðlimir Sigur Rósar gerðu slíkt hið sama í fjórðu seríu.
Tökur á Game of Thrones fara fram á Íslandi í febrúar

Tengdar fréttir

Ísland í bakgrunni sjöttu seríu Game of Thrones
Íslandi mun enn á ný bregða fyrir í hinni vinsælu þáttaröð Game of Thrones.

Bakvið tjöldin við tökur á Game of Thrones: "Ísland eini staðurinn sem kemur til greina“
Í síðasta mánuði kom út ný stikla fyrir nýjustu seríu Game of Thrones og eru aðdáendur að verða spenntir fyrir því að sjöunda þáttaröðin hefjist í júlí.

Game of Thrones: Bakgrunnur Hardhome er frá Íslandi
Til stóð að taka upp eitt magnaðasta atriði Game of Thrones á Íslandi.

Vörumerkið Ísland slær í gegn vegna Game of Thrones
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Brand Finance þar sem segir að virði vörumerkisins hafi hækkað um 83 prósent á einu ári.

Kit Harrington sneri aftur til Íslands
Frekari tökur fyrir sjöundu þáttaröð Game of Thrones fóru fram í Reynisfjöru.

Jon Snow varð ástfanginn á Íslandi
Kit Harington fer með eitt af aðalhlutverkinu í þáttunum Game of Thrones og leikur hann Jon Snow.

Hrekkjalómarnir í Game of Thrones létu Jon Snow finna fyrir því á setti
Daninn Nikolaj Coster-Waldau sem fer með hlutverk Jamie Lannister í þáttunum vinsælu Game of Thrones sagði skemmtilega sögu í viðtali á dögunum.